Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Síða 36
4Ó
Svalöfs Gutcsbygg
— Hammerenbygg
4. Lúpínur og skurfa.
Af Lúpínum var sáð tveimur tegundum. Gulum Lúpínum
(Lupinus luteus) og Bláum Lúpinum (Lupinus angustifolius).
Lúpínunum var sáð 2k í lausan og sendinn jarðveg. Báðat
tegundirnar náðu miklum þroska. Grasið varð '/2-—2 fet á
hæð, og blómgaðist. Miklar líkur eru til að heppnast megi
að rækta Lúpínur hjer á landi, svo að gagni verði.
Skurfa (Spergula maxima). Henni var sáð 2/o í nýbrotinn
mold, leir og sandi blandinn jarðveg. Borin voru á IOO pd.
Chilesaltpjetur, 300 pd. Superfosfat 20 °/o, 300 pd. Kainit.
Slegið 21. september. Heyaflinn var 3340 pd. Það eru miklar
líkur til að svarað geti kostnaði að sá skurfu hjer á landi.
Hún gjörir litlar kröfur til jarðvegsins, en er góð fóðurjurt.
A dagsláttu þarf að sá um 20 pd. af fræi. Pundið kostar
25 aura.
5. Jarðepli.
Tilraunir voru gjörðar með 27 jarðeplaafbrigði. Þar af
voru:
10 afbrigði frá tilraunastöðinni við Luleá í Norðurbotnum
í Svíþjóð.
7 afbrigði frá Noregi. 5 frá búnaðarháskólanum á Asi,
1 frá Sandnæs við Stafanger og I frá búnaðarskólanum á
Bodö.
7 Kungl. Landtbruks Akademiens Experimentalfált Stokk-
hólmi.
3 afbrigði Islenzk.
Þar sem jarðeplin voru sett niður er sendinn jarðvegur,
nokkuð moldblandinn. Það var plægt haustið 1903.
Plægt, herfað og stungið upp vorið 1904. Jarðvegurinn er
líkur á öllu tilraunasvæðinu, og áburðinum dreift svo jafnt,
sem hægt var, yfir allt svæðið. Það var borið á sem svarar
til á vallardagsláttu, 75 hestum af hrossataði, 150 pd. Super-
fosfat, 100 pd. Kaliáburðar 37 °/o og 100 pd. Chilesaltpjetur.