Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Síða 88
£ög
Rœktunarfjelags Norðurlands.
1. grein.
Fjelagið heitir Ræktunarfjelag Norðurlands. Heimili þess
og varnarþing er í Akureyrarkaupstað.
I Tilgangur.
2. grein.
Tilgangur fjelagsins er:
1. Að láta gjöra nauðsynlegar tilraunir til jarðræktar á Norð-
urlandi.
2. Að útbreiða meðal almennings þekkingu á öllu því, sem
að jarðrækt lýtur, og líkindi eru til að komið geti að gagni.
3. grein.
Fjelagið vill ná tilgangi sínum með því að verja tekjum
sínum og sjóðseignum á þann hátt er nú skal greina:
1. Að koma á fót einni tilraunastöð á Norðurlandi, þar sem
gjörðar verði tilraunir með garðyrkju, grasrækt, skógrækt
og tilbúin áburðarefni.
2. Að minni tilraunastöðvum verði komið á fót, víðsvegar um
allt Norðurland, fyrst einni í hverri sýslu og síðan fleir-
um. A þessum stöðvum verði gjörðar þær tilraunir, sem
sjerstaklega geti haft þýðingu fyrir hvert hjerað, t. d.
með tilbúin áburðarefni, einnig þær tilraunir, sem búið er
að gjöra á aðalstöðinni, og líkindi eru til að mundu hafa
þýðingu fyrir jarðræktina, t. d. grasfræsáning, garðyrkju
og gróðursetning trjáa. Tilraunum þessum skal stjórnað
frá aðalstöðinni.