Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Page 39

Eimreiðin - 01.01.1898, Page 39
39 af því að mótmælendur hafi á undan orðið ofan á í Frakklandi. Að Mirabeau hafi verið eldri en Cromwell, og að mannrjettind- unum hafi fyrst verið lýst yfir í Versölum, en þá í Fíladelfiu. Að Shakespeare eigi Corneille að þakka, það sem hann er, en Goethe Victor Hugo, og að á vorum dögum hafi Henrik Ibsen vaxið upp af hinni frönsku leikritagerð, sem svo er öpuð eptir honum. Það, sem fyrst vakti athygli Evrópu og Ameríku á norskum bókmenntum, var hreinleiki þeirra, að þær eru svo skáldlegar; en þá það, að þær eru svo auðugar af hugmyndum, samfara þrótt- miklum, hrífandi búningi. Ekkert ber ljósara vott urn, að skapandi öfl sjeu starfandi hjá einhverri þjóð, að nú sje eitthvað frumlegt í vændum, en það, að hún ummyndar mál sitt; það gjörir hún, þegar hið gamla rúm- ar ekki lengur hið nýja. Þannig var það í Noregi um 1860; frá þeim tima tel jeg nýnorsku bókmenntirnar. Sameiginlega málið (dansk-norskan), er notað hafði verið þangað til, var rofið og sveigt til ýrnsra hliða, eins og gamall árfarvegur, er nýtt vatns- megn streymir að; setningaskipunin varð óþjálli og hvatlegri, en viðfeldið sje fyrir sljettubúana; sægur af gömlum norskum orð- um, sem hingað til höfðu lifað í útlegð i daglega málinu, ruddist frarn og tók með þrákelknissvip sæti á bekk með orðum, sem talin voru heldri háttar. Málið varð bæði kröptugra og þó jafnframt óbrotnara. En sumir Ijetu sjer ekki þessa eðlilegu framþróun nægja; þeir vildu segja algjörlega skipt og skilið við Dani. Þeir vildu innleiða norska bændamálið, sem greinist í ýmsar mállýzkur. Þannig var það talað af öllurn, þangað til Noregur komst í samband við Danmörku, og nokkru lengur. Úr mállýzkunum vildu þeir skapa sameiginlegt landsmál og tóku að rita á því, — án þess að skeyta um það mál, sem búið var að ná fullri festu sem landsmál. Og þeir skeyttu ekki heldur um að halda uppi sambandinu við hið ómetanlega menntalíf Dana, ómetanlega segi jeg, af því að það er menntalíf einnar hinnar gagnmenntuðustu þjóðar heimsins. Þarna kernur dökka rákin fram. Okkur kom öllurn saman um það, að æskulýður alþýðunnar ætti fyrst og fremst að fá tilsögn í sínu eigin sveitamáli; ennfrem- ur, að þessi tilsögn ætti einnig að ná til sameiginlega málsins, yrði slíku einhverntíma komið á fót. En svo vildum vjer, að til- sögnin sameinaði alla þjóðina í landsmálinu, sem geymir vora andlegu fjársjóði, er vjer höfum saman safnað smátt og smátt, og

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.