Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 48

Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 48
208 siðarnefnda ber angurblíðan þunglyndisblæ og veitir einatt aí skornum skammti, og kennir þannig börnum sínum að meta skylduræknina framar öllu öðru. J. P. Jakobsen dó í blóma aldurs síns, nálægt fertugu. Hann var manna vandvirknastur í skáldiðn sinni, enda er það ekki mikið að vöxtunum til, sem eptir hann liggur; það eru að eins tvær alllangar skáldsögur, eitt smásögusafn og dálítið kvæðasafn. — En samt sem áður þurfum vjer ekki að hika oss við, að skipa honum sæti meðal beztu skáldhöfunda vorra, og það af ýmsum ástæðum. Fyrst og fremst vegná þess, að hann ritar fegurra mál en flestir aðrir. Það er sambland af fornum og nýjum stýl, af þjóðmáli og sveitamáli, af orðum sem áður voru til, og orðum, sem J. P. Ja- kobsen hefur sjálfur myndað; hann hefur svo næmt eyra fyrir hljóminum og er svo hnittinn í valinu, að ef til vill mætti full- yrða, að enginu hljómgalli finnist á málinu í öllum þeim riturn, sem eptir hann liggja. Það hvilir einhver óviðjafnanlegur skáld- blær yfir öllu, sem hann ritar, jafnvel þótt í óbundnu máli sje; það úir og grúir þar af orðum, sem menn áður notuðu að eins í skáldskap, en hann gjörir sjer lítið fyrir að við hafa þau í almennri frásögn. — Því að minni orðgnótt nægði eigi til þess að geta lýst lífinu bæði hið ytra í náttúrunni og hið innra í sálum manna, með öllum þeim byltingum og margbreytilegu skuggaskiptum og fjölskrúðugum litbrigðum, er J. P. Jakobsen hafði langtum næmara auga fyrir en nokkur annar maður hjer í landi hafði haft. Það skiptir líka mestu fyrir höfundinn, að orð hans hafi tilætluð áhrif, að þau sjeu ekki tilkomulítið glamur og efnislaust hjóm og þjóti um eyru manna sem hljóðið tómt, eða því sem nær; heldur eiga þau að vera þess umkomin, að geta vakið ljósa mynd í sálu les- arans af því, sem þau tákna; og til þess eru orð J. P. Jakobsens einkar vel fallin. Hann kann líka manna bezt að skipa þeim niður á rjettan hátt. Setningin getur verið hljómlaus og máttvana, þótt orðin sjeu vel valin •— þegar menn finna hvernig málfræðisbeina- grindin skrapir innan í henni. En viljirðu að menn skilji þig til hlítar, þá er ráðlegt að fá setningunum einkennilegan og dálítið ókunnuglegan blæ, með því að vera nokkru styttri í spunann en almennt gjörist, eða að skipa þeim orðum, sem þá eiga að hafa sjerstaka áherzlu, á þann stað í setningunni, er mest ber á, og kæra sig kollóttan, þótt setningasambandið sje nokkuð óreglulegt og þótt búast mætti við allfeitum strikum á stöku stað, ef um

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.