Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Qupperneq 55

Eimreiðin - 01.09.1898, Qupperneq 55
215 Einnig þar sem Gjellerup fæst við nútíðarefni, lýsir sjer þessi »nýrómanzka« stefna hans og þar leynir sjer heldur ekki það dálæti, sem hann hefur á að láta hilla i einhvern dulargrunn á bak við, eins og t. d. í leikritinu »JVuthorn«, þar sem heljarmikinn jökul ber á bak við hina stórfeldu atburði á leiksviðinu, eða þá í skáldsögunni »Mylnan«, þar sem persónurnar eru hver um sig eins og samvaxnar eptirlætisskepnum sínum, ein hind, önnur ketti o. s. frv. — líkt og er með mann og fylgju hans. Stundum lætur hann líka þessa dulardóma sína koma fram í gamansömu nýtízku sniði, eins og t. d. í smásögunni »Umslagið«, þar sem hann gjörir rithandafræði að umtalsefni; saga þessi er rituð með stakri lipurð og þýðleika, eins og hún sje af allt öðru bergi brotin en önnur rit Gjellerups. Hefur það aldrei hent ykkur, þegar þið hafið verið að lesa einhverja skáldsögu, að þið hafið allt í einu staldrað við og hugsað með sjálfum ykkur: »Hvað skyldi nú annars þetta fólk, er hjer segir frá, hafast að svona hversdagslega?« I bók sinni »Sál eptir dauðann« lætur Heiberg sál oddborgara eins komast svo að orði um skáldin: »Tit jeg föler mit Hjærte brænde Af Begærlighed efter ham selv at kende, At vide, hvordan han spiser og drikker, Hvordan han nyser, hvordan han hikker, Kort sagt, at kende ham rent privat.*1 Þess sama hljótum vjer opt að óska oss um þá menn, er skáldin herrna oss frá. Því að vanalega lofa þau okkur ekki að sjá þá nema í sparifötunum, eða með öðrum orðum að eins í þeim augnablikum, er þeir eru í háleitum hugrenningum og sem alvörumestir, eða þá afskaplega skringilegir. I stuttu máli, vjer finnum glöggt til þess að þeir eru settir til sýnis og látnir leika gamanleiki fyrir oss, »og það gjöra þeir vel og náttúrlega«, þótt þeir einatt berjist helzt tij mikið um með höndum og fótum, svo að vjer getum gengið úr skugga um, að þeir sjeu lifandi menn en engar brúður. Það mætti líka líkja þeim við þá menn, er halda ræður í veizlum og við önnur hátíðleg tækifæri og sumir eru hátíðlegir, aðrir fyndnir og glensmiklir, sumir hlálegir bæði 1 Þ. e. Einatt finn jeg til brennandi löngunar eptir að fá að þekkja hann sjálfan, að fá að vita, hvemig hann fer að eta og drekka, hvernig hann fer að hnerra og hiksta, í stuttu máli að þekkja hann svona hversdagslega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.