Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 58

Eimreiðin - 01.09.1898, Síða 58
2l8 — allt er svo tárhreint og tært; — að hálfs mánaðar tíma liðnum eru blöðin orðin ormjetin og liturinn dekkri; og svo ketnur há- sumrið, auðsælt og blómþrungið; en æfi rósanna er stutt. Oðar en varir er kornið hnigið á ökrunum og haustið dettur á með hrakviðri og stormi; en trjen bera þó blöð sín enn, en nú eru þau bliknuð og drúpandi; svo kemur frostið einhverja nótt, hægt og hljótt, og þegar sólin rís að morgni fellur blað af blaði, blað af blaði. — Allt er fokið í veður og vind. Svona er blærinn á skáldsögunum »Tína« og »Hlöðvishvoll«. En yfir sögunni y>Örvona ættir«, er Bang ritaði á yngri árum, hvílir eins og hausthöfgi, haustfúi og örvænting. Eins og sífelld óró, og jafnvel glundroði, er aðaleinkennið á ritum Hermanns Bang, þannig er og ró og skýrleiki ráðandi og ríkjandi hjá Henrik Pontoppidan, og það helzt um of; enda skiptir rnjög í tvö horn um tilgang þeirra. Bang leitast við að gefa ljósa mynd af sköpum mannanna, — það er aðalmark hans og mið. Þess vegna er honum það fyrir mestu að geta sjergreint (individu- alisere) persónur sínar, það er að segja að geta lýst þeim með svo ljósum dráttum, að allir hljóti að finna, að einmitt svona sje þeim manni varið, sem hefur reynt lífið og þjáningar þess, — en að eins einum manni í víðri veröld; þess vegna tekur hann jafnan allar »umhorfurnar« með, sem eiga svo mikinn þátt í lífi hvers einstaklings, og gefur þeim ríkulegt rúm. A hinn bóginn er það mark Pontoppidans að »alyrða« (generalisere), það er að segja að mála persónur sinar þannig að menn finni, að bak við hverja einstaka þeirra standi ótal aðrar, og að hún þannig sje fulltrúi heillar stefnu, eða jafnvel heillar stjettar í þjóðfjelaginu. Urn þessa »fulltrúa« verður frásögnin að sveipa nokkurs konar friði og ró; orð þeirra hafa mikla þýðingu, því að það er margra mál, sem þeir flytja; þeir rnega ekki vera málskrafsmiklir og sírausandi, heldur verða þeir að tala til vor sem talsmenn fjölda annara; vjer megum ekki sjá þá við neitt hversdagsdund; þegar vjer því sjáum þá við eitthvert starf, þótt ekki sje nema við mykjukvíslina eða plóginn, þá koma þeir fram sem hálfgerð ímynd annara og gegna þessu starfi í þeirra nafni. — Það er aldarhátturinn, sem Pontoppi- dan leitast við að sýna oss, og þessvegna verða persónur hans hver um sig að vera ímynd heils flokks. Það eru fádæmin öll af »straumum« og »stefnum«, er gengið hafa yfir Danmörk á síðastlíðnum 20—30 árum. I stjórnmálum

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.