Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Side 6

Eimreiðin - 01.09.1900, Side 6
rákir, er skerast. Slíkar ísrákir hafa áður fundist víða um land og »interglacial« móbergslög hefi ég auk þess, sem áður var getið, fundið 1898 á Mosfellsheiði.1 í sjálfu sér hefir það mjög litla þýðingu fyrir vísindin, hver finnur eitthvað fyrst. H. P. á þökk skilið fyrir að hann hefir aukið þessar athuganir og vakið athygli á þýðingu þessa máls; ég efast ekki um, að hann hrindir þekk- ingunni í þessu efni vel áleiðis, ef hann heldur áfram rannsóknum sínum; en ef hann aftur skrifar alþýðlegar ritgjörðir um jarðfræði íslands (sem ég vona hann gjöri) leyfi ég mér að mælast til, að hann skáldi ekki alveg eins mikið inn f eyðurnar, eins og í þessari ritgjörð, skýri málefnið dálítið betur og segi meir frá hinum ein- stöku athugunum, sem hugleiðingarnar byggjast á. H. P. ætlar að Suðurlandsundirlendið muni tvisvar hafa verið undir sjó, og getur vel verið, að það sé rétt; ég fyrir mitt leyti álít það sennilegt, en vér getum enn ekki ákveðið það með fullri vissu, af því nægar sannanir vantar. Höf. segist hafa fundið fjöru- borð 400 fet yfir sjó í Þrándarholtsfjalli, og er það þýðingarmikil athugun, ' ef það er víst, að þar sé sævarborð; meðan athugun þessi er einstök, er ekkert hægt á henni að byggja. Par geta alveg eins vel verið vatnsfjöruborð (Sæter) frá ísöldinni, eins og hin glöggu fjöruborð, sem ég hefi fundið við Hvítárvatn og í Fnjóskadal. Slík fjöruborð eru víða, þar sem enginn stöðuvötn nú geta verið eftir landslagi; en á ísöldinni og síðar hafa jökla- stíflur staðið fyrir og stór vötn hafa verið uppistöðupollar, þar sem nú er flatlendi eða halllendi, eftir að jökullinn er bráðnaður af. H. P. stingur upp á því, að Suðurlandsundirlendið muni vera myndað á tímabili milli ísalda; ég hefi hugsað mér, að undirlendið væri til orðið seinast á tertíera tímanum, og er aldursmunurinn þá ekki tiltölulega mikill; þetta mál verður fyrst um sinn að liggja á milli hluta, því hvortveggja getgátan er jafn ósönnuð. Svo ég snúi mér að sjálfum Pjórsárdal, sem er fyrsta tilefni ritgjörðar þessarar, þá eru þar enn margar ráðgátur fyrir jarðfræð- inga. Winkler skoðaði dalinn 1858, H. P. hefir komið þar tvisvar eða þrisvar sinnum og ég einu sinni; en það á enn langt í land, að jarðfræði fjallanna þar í kring sé fullrannsökuð; margt af hinu einstaka er þar enn lítt skiljanlegt, eins og víðar í móbergshéruð- unum. Hvernig er hlutfall hnullungabergsins og hinna ísnúnu 1 Geografisk Tidskrift XV, bls. 14.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.