Eimreiðin - 01.09.1900, Blaðsíða 34
194
því fæddist — Lúðrafélagið, sem oft hefur skemt á Austurvelli
og inni í húsum, svo alt ætlaði að rifna. — Iðnaðarmanna-
félagið með sitt stóra hús og allskonar spilverk. — fBræðra-
félagið, þar sat enginn á sárs höfði. — Stúdentafélagið, sem
hefur tekið það fyrir að »menta alþýðu«. — f »Balletten«, þar
var dansað og soltið, dó úr hungri. — fSundfélagið, þar mátti
enginn verða votur. — fSíldarfélagið, sem átti enga síldar-
vörpu. — fSöngfélagið, tómir næturgalar. — f Svava, annað
söngfélag, rifnaði. — f Ingólfur, stofnað með tómum þýðingum.
— íþaka, bókafélag skólapilta, lifir einkum á bókum frá Fiske. —
Garðyrkjufélagið, lifir á kálgraut. —Húss- og bústjórnar-
félagið, nú myglað orðið. — Bandamannafélagið, óvíst hvort
lifir á Bandamannasögu eða styttuböndum kvenna. — f Pístólu-
félagið, lifði á brennivíni. — f Friðþjófur, þuldi Friðþjófssögu
og dó. — Skósmiðafélagið, vill útrýma allri krít úr heiminum.
— Prentarafélagið, frægt fyrir samsöng og skáldskap. —
Járnsmiðafélagið, eflir járnsmíði og herzlu. — Blikksmiða-
félagið, í því er einn meðlimur — Glímufélagið hefur stund-
um gert dynki í leikhúsi Breiðfjörðs. — Dýraverndunarfélagið,
sem enginn veit hvað gerir. — Skautafélagið, sem ávalt fær
regn og illviðri, þegar það ætlar út á tjörnina. — Kennarafé-
lagið, sona til málamynda. — Róðrarfélagið, er nú stundað
af nokkrum stúlkum; karlmennirnir gáfust upp. — Kvennfélagið,
eflir atorku kvennþjóðarinnar og alla pólitík. — Mímir, náttúru-
fræðisfélag skólapilta. — Biflíufélagið, hefur nú í mörg herrans
ár verið að bisa við biflíuna. — Fornleifafélagið, grefur í ösku-
hauga. — Bókmentfél^gið, yrkir um »stjarnnótt« í »náttblævi«.
Kaupfélagið, stofnað til að stríða kaupmönnum. — Ábyrgðar-
félag þilskipaeigenda, borgar allar skútur, sem farast? —
Útgerðarmannafélagið, lifir á tilberasmjöri (margarine). —
Náttúrufræðisfélagið, kaupir fugla og er á flækingi.—Fram-
farafélagið, eflir allar framfarir, hverju nafni sem nefnast. —
Báran, sem leikur rammíslenzk kraftstykki. — Leikfélagið, sem
lepur alt, sem útlent er, en getur ekkert leikið innlent. — Aldan,
fæst við sjómensku á landi, — Bindindisfélagið, sem veit ekki
að orðið »bindindi« er kvennkyns. — Góðtemplarafélagið,
sem talar um Bakkus og brennivín, og svo »last not least«. —
Blaðamannafélagið: »Tilgangur félagsins er að styöja að heið-