Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Page 13

Eimreiðin - 01.09.1900, Page 13
173 Aldrei ættland hans getur þann arfa, sem betur því ann, og til sannari göfugleiks hefst. Víst þaö góöa fær drengi og lifa mun lengi sá lofstír, er ýmsum þess skörungum gefst. En í prestlegum ljóma með sérstökum sóma ber Saga nafn l’orláks hins helga þó efst. Menn í kirkjunni þreyja hjá kistunni’ og þegja og krjúpa’ undir valdið, sem tyftun lagði’ á. Eftir þrjár nætur langar með líkbörur ganga til legstaðar hinsta og greftra þar ná. Döpur jól hefir lýður. En blundur er blíður hins burtfarna’, er hvílast í guðsfriði má. Á jólunum 1894. Br. J. þýddi. Reykjavík um aldamótin 1900. Eftir mag. Ben. Gröndal. GÖTULÍFIÐ. Umferðin á götunum er mjög misjöfn; á sumrin er mest af lestamönnum, og stundum úir og grúir af skútnamönn- um, þegar þeir eru að fara á stað eða koma inn úr »túrunum«. Skyldu menn þá halda að þetta væri Flæmingjar eða Frakkar, svo óíslenzkir eru þessir menn orðnir af þilskipaverunni, og sýnu betri voru sjómennirnir áður, meðan róið var á opnu fleytunum, þótt þær þyki nú óhafandi og ekkert eigi að duga nema þilsldp eða helzt gufuskip og botnvörpubollar; en ekki er kyn þótt mönnum þyki ekki lítil fremd í að líkjast útlendingunum, þótt ekki sé í hærra veldi feg- urðarinnar en þetta er. — Umferðin er mjög undir veðrinu komin, því að í góðu veðri og einkum á helgidögum gengur fólkið sér til skemtunar; áður lá skemtigangurinn því nær eingöngu út á »melana« (d: Skildinganesmela), en nú eru margir aðrir vegir til skemtunar. Svo má að orði kveða, að jafnaðarlega séu tvö öfl ráðandi í götulífinu (eða »dómínerandi element«), en það eru »götu- strákarnir« og hrossin. Pess ber að gæta, að hér heyrist aldrei annað en »strákar«, aldrei »drengir«, altaf »stelpur«, aldrei »stúlkur«; altaf »krakkar«. aldrei »börn«. Götubörnin eru oft hópum saman, náttúrlega öllum lögum undanþegin;—þau »spila klínk«, »stikka«,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.