Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Page 17

Eimreiðin - 01.09.1900, Page 17
>77 efni frá Sjómannaskólanum, allir þrútnir af matematík og hugsandi um »pólíhæðina«; þeir heilsa ekki, þeir vita hverjir þeir eru, kall- arnir! I’eir eru tvö ár á skólanum og eru þá útlærðir og fá jafn- há laun og héraðslæknirinn og hærri er. aukalæknarnir, sem hafa verið tólf ár að læra. Svo mætum við kannske vatnskarli með járnvagn og járntunnu, sem vatnið gusar og vellur upp úr og út um alla götuna, en ekki heyrist mannsins mál fyrir glamrinu. — Par kemur einn ríðandi og ríður of hart — en Póli er þar eins og elding og tekur í taumana og sektar þann brotlega syndara. Pá eru stúlkur með barnavagna, aðrar með brauðkarfir, eða sumar með fislc — eða reiðhjólin þjóta með stígandi læralyftingum eins og örskot fram hjá steinhissa ferðamönnum; — því skyldi manni ekki detta í hug, það sem Jón bóndi sagði, þegar hann kom á Austurgötu í Kaupmannahöfn: »Á hverju lifir alt þetta fólk?« Eða þá að stundum sést mannþyrping, sem er að hlusta á ein- hvern guðsmann eða syndaprédikara, sem þrumar um sitt eigið fyllirí og hvernig máttugir andar hafi snúið honum frá villu hans vegar og keyrt hann af afli inn í heilagleikann, og svo heimtar hann með hótunum um helvíti og kvalirnar, að allir verði heilagir. — Pá kemur »Hjálpræðisherinn« með fiólín og söng og gengur hátíðlega fullur af guðrækni með frelsuðum sálum, en fjöldi ung- menna og smástelpna fylgir á eftir í eftirvæntingu eilífs lífs og frelsisins. Á sumrin koma og ýmsir útlendingar, og hefur »Ferða- mannafélagið* ætlað að draga þá hingað, til þess að eyða pening- um hér, en það hefur eldci tekist sem bezt, enda er þetta félag í rauninni einskonar betlifélag, eins og öll slík félög í útlöndum (en þaðan er þetta apaspil komið eins og fleira); en margir koma, sem ekkert eiga skylt við slíkt tildur; sumt af þessu fólki fer að sjá Geysi, þótt vér nú ekki getum sýnt hann sem íslenzka eign, því hann er seldur útlendingum eins og annað. Meðan hin frakknesku þilskip lágu hér, þá var oft krökt á götunum af frönskum sjómönnum, og voru þeir ekki betri en okkar menn, heldur miklu verri, en tólfunum kastaði þegar ensku herskipin komu hingað 1B96; þá mátti sjá mann á götunum, þegar þeim var hleypt í land hundr- uðum saman, og hefur bærinn aldrei séð annan eins tartaralýð og þessa Englendinga: þeir drukku alt sem af tók, og voru blindfullir að slæpast um allar götur, stálu mörgu og létu illa, enda færa þessháttar menn sig fljótt upp á skaftið, þegar þeir sjá, að engin vörn er fyrir og ekkert lögreglulið; vér munum svo langt, að 12

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.