Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Qupperneq 19

Eimreiðin - 01.09.1900, Qupperneq 19
179 nokkuð sé um hirt. — Annars lítur nú svo út sem latínuskólinn eigi ekki að verða annað en »gagnfræðaskóli« eða jafnvel »bún- aðarskóli«, því að öll »þjóðin« virðist ekki hugsa um neitt annað en matinn, alt sem er hugsjónarlegt, er skoðað sem óþarft eða jafnvel skaðlegt, og það standi öllum »nytsamlegum« fræðum fyrir þrifum. Menn eru farnir að berjast fyrir »nýju málunum«, til þess að nemendurnir geti talað við útlendinga, og svo lifa menn í þeirri »innbyrlingu«, að þá fari allir í óða önn að lesa útlendar bækur, því hversu mikið sem »nytsemdar«-glamrið er, þá er öll þessi skólakensla ekkert annað en bókvísi, reynslulaus skoðun og ekki annað; lífið sjálft og verk lífsins eru lokaður heimur eftir sem áður. Þannig eru fjölda margar fræðigreinar einnig kendar í hinum skólunum, og í hverjum skóla, og enginn veit neitt í neinu að nokkru gagni; en þetta skólakák stendur nú einusinni á dagskránni og verður að standa þar fyrst um sinn. Fyrir flestum er það nafnið tómt; það lætur svo vel í eyrum »að vera í skóla«, en hversu mikið almenn- ingur ber úr býtum af skólalærdóminum, það hefur reynslan sýnt fyrir löngu. Par sem latínuskólinn heimtar — eða hefur heimtað — undir- búningskenslu, þá er þetta náttúrlega ekki heimtað í hinum skól- unum, svo sem eru »kvöldskólinn«, sem er prívat-fyrirtæki; engan undirbúning þarf heldur til »sjómannaskólans«, nem- endurnir komast þangað alveg ókunnir allri »mentun« — ekki svo vel, að þeir þurfi að hafa tekið í ár! En í öðrum löndum fær enginn að taka próf á slíkum skóla, nema hann kunni ýmislegt og hafi vanist sjómensku áður. Pá er »kvennaskólinn«: sama hrúgaldið af ýmsum fræðigreinum, og sama má segja um barna- skólann: þar er alt gert til að hrúga sem mestu upp á nem- endurna, án þess þeir hafi neitt verulegt gagn af öllum þessum ósköpum, því í rauninni er ekki mikil löngun til verulegrar þekk- ingar, enn síður til þess að efla dáð og dug, alt er undir því komið »að sýnast«, en ekki »að vera«. Fólkinu þykir svo mikið í munni þetta: »að mentast«, »að vera í skóla!« Sönnunin fyrir þessu er einmitt sú, að hér eru nú aldrei út gefnar neinar bækur fræðandi efnis; — það, sem af þessu tægi stendur nú í blöðunum, er lesið eins og hvert annað »newspaper trash«, sem Englending- urinn kallar svo, það er lesið, rifið sundur, haft til umbúða, eða gleymt. Skólabækurnar eru það einasta, sem út kemur til fræðslu, flestar ónýtar, svo sem eru dönsku lestrarbækurnar, sem hér eru 12'
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.