Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Qupperneq 29

Eimreiðin - 01.09.1900, Qupperneq 29
189 um af þeim, sem hafa einhverja trú, en þeir, sem enga trú hafa, þurfa ekki þessarar kenningar. Reykjavík líkist stórborgunum meðal annars í því, að hér hafa á síðustu tímum komið upp ýtnsir trúarflokkar, þar sem hér eru nú »aöventistar«, »únítarar«, fríkirkju- menn, hjálpræðismenn og kaþólskir menn, og er nú ólíkt því, sem áður var, þegar allir hér voru svo dauðhræddir við kaþólskuna, eins og hún væri af sjálfum djöflinum, sem sjá mátti oftar en einu sinni ekki alls fyrir löngu, t. a. m. 1859, þegar biskupinn klagaði Bernard (en stjórnin fór ekki eftir því), eða 1864, þegar stjórnin bannaði kaþólskum prestum að messa í Reykjavík og kallaði það »ólöglegt athæfi« eftir fyrirmælum bæjarfógetans; það er að skilja: enginn mátti vera við kaþólska guðsþjónustu, nema sá, sem væri af þeirra flokki; eða standið með Einar Ásmundsson 1870, sem »réttvísin« varð uppvæg við út af því, að hann hýsti Baudouin, en málið var látið falla niður, án þess þó að Einar fengi neinar skaðabætur fyrir alt þetta þvaður og allan þann óskunda, sem hann hafði orðið fyrir af »réttvísinnar« hálfu (Bréf dómsmálastjórn- arinnar 21. september 1870). Svona »trúarsterkir« voru menn þá; en nú! Nú geta allir vaðið uppi eins og þeir vilja, því nú er ekkert álitið hneykslanlegt, svo það var hreinn óþarfi að keyra 46. grein inn í stjórnarskrána, því samkvæmt reynslunni getur varla neitt verið »gagnstætt góðu siðferði«, þar sem mormónarnir hafa getað gengið hér eins og logi yfir akur með sitt fleirkvæni og annan afkáraskap, án þess nokkurt yfirvald skifti sér af því eða hafi reynt að verja fáfróðan almúga fyrir tælingum og vitleys- um, heldur en vant er. Og þó að hér sé núna sem stendur ekki neitt af mormónum, þá geta þeir komið hvenær sem vill; þeir munu fá góða uppskeru hér, þótt Bandafylkjastjórnin hafi bannað athæfi þeirra hjá sér. En hvað vorn lúterska söfnuð snertir (sem raunar er fjölmennastur), þá verður ekki kvartað yfir því, að fólkið sæki ekki kirkjuna; nú er messað á hverjum helgidegi oftar en einu sinni, og ber ekki á öðru en kirkjan sé alskipuð í hvert sinn, en hversu mikil áhrif ræður prestanna og áminningar geri á áheyrendurna, veit enginn nema þeir sjálfir. Pýðingafárið hefur smeygt sér inn hér eins og annarsstaðar; hálærðir guðfræðingar geta ekki lengur tekið saman svo lítið sem fræðin eða barnalær- dómsbók, alt verður að leggjast út úr öðrum málum, og loksins verður það úr, að menn geta ekki verið þektir fyrir að tilbiðja guð eða trúa á hann á íslenzku, þeir fara að trúa á hann á ensku eða
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.