Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Síða 45

Eimreiðin - 01.09.1900, Síða 45
205 alþingi íslendinga síðasta rothöggið og afnema það með öllu. Þó það hefði langa hríð ekki verið nema skuggi hjá því, sem áður hafði verið, söknuðu margir þess þó sárt. En alt var samt látið kyrt hinn fyrsta þriðjung aldarinnar. Fyrst eftir að júlíbyltingin á Frakk- landi 1830 hafði ýtt við mönnum og Danir tóku að stofna fylkja- þing hja sér (1831), sem Islendingum var ætlað að senda fulltrúa á, tóku menn að vinna af kappi að endurreisn alþingis, unz það loks var endurreist með tilskipun 8'/3. 1843 sem ráðgjafarþing til að ræða þau lög og málefni, sem eingöngu snertu Island. Pegar febrúarbyltingin á Frakklandi 1848 hafði komið enn meira umróti á hugi manna, er hafði leitt til þess, að Danir fengu stjórnar- skrá og löggjafarþing (5-/6. 1849), tóku menn undir forustu Jóns Sigurðssonar að vinna að því, að íslendindingar fengju hin sömu réttindi og alþingi löggjafarvald. En með því stjórnin og alþingi gátu ekki orðið ásátt um það, hvernig stjórnarskrá Islands skyldi vera, né hvernig sambandi íslands og Danmerkur skyldi vera varið, var barist um þetta í næstum heilan aldarfjórðung, unz fjárhagurinn var aðskilinn og staða íslands í ríkinu ákveðin með stöðulögunum 2'/i- 1871 án samþykkis íslendinga. Um stjórnar- skrána var barist enn, unz alþingi 1873 lagði málið á vald kon- ungs, sem svo gaf landinu stjórnarskrá um hin sérstaklegu mál- efni íslands 5,/i- 1874 »af frjálsu fullveldi«. Samkvæmt stöðulögunum er Island »óaðskiljanlegur hluti Danaveldis með sérstökum landsréttindum«. 011 íslenzk mál skift- ast í tvo flokka: almenn mál og sérstök mál. Hin almennu mál liggja eingöngu undir löggjafarvald Dana (konung og ríkisþingið) og íslendingar hafa engan atkvæðisrétt í þeim meðan þeir greiða ekkert í ríkissjóð. Eina leiðin til að geta haft nokkur áhrif á úr- slit þeirra er sú, að ráðgjafinn fyrir ísland tali máli íslendinga í ríkisráðinu. í hinum sérstöku málum (og í þeim flokki eru flest málin) er samkvæmt stjórnarskránni löggjafarvaldið hjá konungi og alþingi í sameiningu, framkvæmdarvaldið hjá konungi og dómsvaldið hjá dómendunum. í byrjun aldarinnar gat konungur einn gert alt að lögum á íslandi, sem honum þóknaðist, án þess að spyrja nokkurn íslend- ing til ráða. En nú getur ekkert, er varðar ísland sérstaklega, orðið að lögum með varanlegu gildi, nema alþingi samþykki. Konungur getur ekki breytt einum staf í lögum alþingis. Hann

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.