Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Side 49

Eimreiðin - 01.09.1900, Side 49
209 eitt af bókum. Á öllu þessu er nú orðin mikil breyting. Nú er hverjum manni heimilt að reka prentiðn og prentsmiðjurnar o.rðnar 9 (af þeim 4 í Rvík). Blöðin eru nú um 20 alls og tímaritin 12. En auk þess koma út 7 íslenzk blöð í Ameríku og 2 tímarit. Nú er og komið á fót bóksalafélag og árlega gefið út töluvert af bókum. í byrjun aldarinnar var hér um bil það eina, sem varið var af landsfé til eflingar mentun og uppfræðing, það sem veitt var til latínuskólans. Og það var af svo skornum skamti, að kennarar hans áttu við sönn sultarkjör að búa. En nú er annað orðið uppi á teningnum. Nú er veittur árlegur styrkur af landsfé til allra barnaskóla (nema í hinum 4 kaupstöðum), til sveitakennara, til kvennaskólanna allra, til búnaðarskólanna, og hússtjórnarskólanum hefir og verið veittur töluverður styrkur. Og svo er latínuskóiinn, prestaskólinn, læknaskólinn, sjómannaskólinn, annar gagnfræðaskól- inn (og hinn að mestu leyti líka, ásamt kennaradeildinni) algeriega kostaðir af landsfé. í öllum þessum skólum er kenslan veitt ókeypis og nemendurnir geta meira að segja að auki orðið meiri eða minni námsstyrks aðnjótandi. Kenslukjörin eru með öðrum orðum svo góð, að önnur slík munu hvergi finnast annarsstaðar í heiminum. Auk þess fjár, sem árlega er veitt til skólanna, eru á hverjum fjárlögum jafnan veittar töluverðar upphæðir til félaga og tímarita, sem vinna að mentun og uppfræðing, og eins til einstakra manna til ritstarfa og vísindalegra iðkana.1 Af hálfu einstakra manna hafa fjárframlög til mentastofnana eða til eflingar uppfræðing verið tiltölulega lítil í samanburði við það, sem víða gerist annarsstaðar. En því veldur að miklu leyti fátækt landsmanna. Að viljann hafi ekki vantað, sýnir það, að margir einstakir menn hafa með stakri ósérplægni unnið sumpart að mentun og uppfræðing almennings og sumpart að vísindalegum störfum, án þess að fá eins eyris virði fyrir störf sín,— en stund- um kannske óþökk í þess stað. f*ó má telja eigi allfáa sjóði til eflingar mentun og uppfræðing og skulum vér sem dæmi nefna gjöf Pórarins prófasts Böðvarssonar til skólastofnunar í Flensborg, Thorkillii barnaskólasjóð (um 70,000 kr., stofnaður á 18. öld), heimspekisjóð Hannesar Árnasonar prestaskólakennara (nú um 50,000 kr.), kvennaskólasjóð frú Herdísar Benediktsen og dóttur 1 Pað er orðinn siður á íslandi að kalla allar slíkar tjárveitingar »bitlinga«, getur ekki stafað af öðru en hinum algenga sjúkdómi íslendinga: öfundinni. 14 *em

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.