Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1900, Page 58

Eimreiðin - 01.09.1900, Page 58
218 fyrir heimilisiðnaðinn. Pær tilraunir hefir og alþingi stutt með því að veita aðgang að lánum til þess með vægum kjörum, og síðasta alþingi steig jafnvel feti framar, þar sem það samþykti frumvarp um undirbúning á stofnun fullkominnar klæðaverksmiðju, hvað sem stjórnin kann við það að gera. Að öllu samtöldu verður ekki annað sagt, en að iðnaður- inn standi á mjög lágu stigi á íslandi, og er það því hörmulegra, sem landið hefir ýms skilyrði til að geta orðið mikið iðnaðarland, þar sem það á svo ódýrt og óþrjótandi vinnuafl í ám og fossum. Landið ætti því að geta unnið ekki að eins alla þá ull, sem þar er framleidd, heldur og flutt inn ýms efni til að umskapa með töfrasprota vatnsafls og rafmagns. En vonandi kippir 20. öldin þessu eitthvað í liðinn og mætti þá vel fara svo, að iðnaðurinn yrði einn af helztu atvinnuvegum íslendinga. Verzlunin hefir tekið allmiklum stakkaskiftum til bóta og smámsaman orðið meira innlend en áður, þó mikils sé enn í vant, að hún sé eins og hún ætti að vera. Af verzlun lifðu 1890 2,1 °/0 af landsbúum, en 10 árum áður (1880) ekki nema 1,7 °/o. Petta sýnir, hvert breytingin stefnir, bæði að verzlunin er að verða meira innlend og komast á fleiri hendur. í byrjun aldarinnar var því nær öll verzlun landsins í höndum fárra útlendinga, og þó hún væri að lög- um (síðan 1786) frjáls öllum dönskum þegnum, mátti svo heita, að hún væri fullkomin einokunarverzlun fram um miðja öldina. Fyrst eftir 1854, þegar verzlunin var gerð frjáls öllum þjóðum, fer að bera á töluverðum bótum, en mestar hafa þó framfarirnar orðið á hinum síðasta fjórðungi aldarinnar (eftir 1874), eftir að samgöng- urnar tóku að batna og eimskipaferðir að aukast. Á hinum síðari helming aldarinnar hefir verzlunarmagn lands- ins hér um bil fimmfaldast. 1849 var það ekki nema 3,341,000 kr., en 1896 var það orðið 15,351,000 kr. Pá námu útfluttar vörur 7,072,000 kr. og vóru af þeim afrakstur af sjávarafla 3,968,000 kr. (56,1 °/o), af landbúnaði 2,526,000 kr. (34,9 °/o) og af hlunnindum 578,000 kr. (8,2 °/0). Innfluttar vörur námu þá 8,279,000 kr., og vóru af þeim matvörur fyrir 1,781,000 kr. (21,0 °/0), munaðar- vörur 2,074,000 kr. (25,8 °/o) og allar aðrar vörur 4,424,000 kr. (53,2 °/0). Sem dæmi upp á einstakar vörutegundir má nefna, að þá var innflutt af kaffi fyrir 611,931 kr., sykur 561,332 kr., vín- föng 483,707 kr. og tóbak 392,003 kr. Pessi aukning verzlunar- magnsins stafar auðvitað nokkuð af fólksfjölguninni, en hún er þó

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.