Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1903, Page 19

Eimreiðin - 01.01.1903, Page 19
l9 Og hvað er nú eðlilegra að hugsa sér, en að afturhaldslið Heima- stjórnarflokksins, sem í rauninni er stýrt af þeim manni, sem lengi hefir verið þáttur í Estrúpsstjórninni, ætli sér að leika sömu listina á íslandi, úr því að því hefir tekist að koma ávarpi Heimastjórnar- flokksins í téðum atriðum í svo dásamlegt samræmi við hina pólitisku frændur sína í Danmörku? En til þess nú að kjósendur skuli taka sem minst eftir þess- um afturhaldseinkennum ávarpsins, er svo heimastjórnar- gærunni kastað yfir alt saman. Hún er altaf svo »þjóðleg«, greyið. Pó er hún nú við brúkunina — eða misbrúkunina — farin að slitna svo, að það er komin á hana stór gloppa, sem grilla má í gegnum, hvað inni fyrir er. Par er hvorki meira né minna en heill landsdómur með tilheyrandi ábyrgðarlögum fyrir nýja ráðgjafann. Pað er nú gott og blessað, enginn framsóknar- maður hefir í sjálfu sér á móti slíku, enda er gert ráð fyrir þess- um ábyrgðarlögum í hinu nýsamþykta stjórnarskrárfrumvarpi. Ein flestir munu satt að segja ekki hafa búist við svona miklu bráð- læti, allra sízt úr þeirri átt. I fyrra æptu öll blöð Heimastjórnar- flokksins, að alt ylti á búsetunni, fyrir hana væri alt gefandi,— jafnvel sjálf landsréttindin (samkvæmt þeirra eigin skoðun á »lög- festing« sérmálanna í ríkisráðmu að undanförnu). En nú er komið annað hljóð í strokkinn. Nú segir Heimastjórnarflokkurinn í ávarpi sínu, að »búseta stjórnarinnar hér í landi sé ekki ein út af fyrir sig fullnægjandi«. Á var svo. Petta hefir fleirum fundist fyr, og því að eins viljað skoða hana sem mikilsverða viðbót við önnur gæði. En þá vildu Heimastjórnarblöðin ekki heyra slíkt nefnt. Hún væri alt, alt annað einskis vert í samanburði við hana. En nú er Heimastjórnarflokkurinn kominn til þeirrar viður- kenningar, að annars og meira þurfi með. Pað þurfi líka að fá ábyrgðarlög og innlendan dómstól til að dæma stjórnina. Og fyrir þessu kveðst flokkurinn ætla að hefja baráttu þegar á »næsta þingi«. Það eigi meira að segja »einkum« að verða hlutverk næsta þings að fást við þetta. Flokkurinn muni »hér eftir sem hingað til leggja fram alla krafta sína til þess að tryggja þinginu hæfileg áhrif á stjórnina, og að öðru leyti efla þingræði svo sem mest má verða«. Svo »atvinnumálin« eiga þá ekki einu sinni að »skipa öndvegissessinn«, þegar til kemur, sem þó var lofað nokkrum línum áður í ávarpinu. Nei, stórpólitíkin á »hér eftir sem hingað til« að sitia í fyrirrúmi fyrir öllu öðru og 2’

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.