Eimreiðin - 01.05.1905, Side 12
92
lega við það, sem rotið er og fúið — með snild, er hlýtur að
hrífa. Fyrir mitt leyti vildi ég gefa ekki minna en tvo þriðjunga
af öllum rímarahópnum okkar (og það er ekkert smáræði) fyrir
aðeins eitt sagnaskáld, er við hann gæti jafnast. Eg er í eng-
um efa um, að það væri þjóðinni góð skifti.
f öndverðum nóvembermán. 1904.
GÍSLI SVEINSSON.
Legstaður Jónasar Hallgrímssonar.
í æfisögu Jónasar, sem prentuð er framan við »Ljóðmæli og önn-
ur rit« eftir hann, stendur á bls. XXXIX: »31. maí var hann jarðað-
ur í Assistentskirkjugarðinum Litr. S, No. 198«. í’etta mun tekið úr
Fjölni, en er ekki nákvæmt, því að það vantar, að þess sé getið, í
hverrar sóknar »Litra S« hann hafi verið grafinn. Assistents-kirkju-
garðurinn var nefnilega áður fyrri kirkjugarður margra sókna, og átti
hver sókn marga hluta kirkjugarðsins hér og þar um garðinn. Hverj-
um hluta hverrar sóknar var skift í reiti með tölustafamerkjum, en
hver hluti fyrir sig hafði sitt bókstafsmerki. Vóru því þá fleiri »Litr.
S, No. 198« en legstaður Jónasar.
Fyrir hér um bil 20 árum síðan (1880—81) var þessu breytt á
þann hátt, að öllum kirkjugarðshlutum hinna ýmsu sókna var slegið
saman og öllum kirkjugarðinum síðan skift í einu lagi í hluta með
bókstafamerkjum og hveijum hluta fyrir sig í reiti með tölustafamerkj-
um. Við þetta breyttist auðvitað gjörsamlega bókstafs- og tölumerki
hvers legstaðar, svo að nú liggur Jónas ekki »i Assistents-kirkjugarðin-
um Litr. S, No. 198«.
í dagbók kirkjugarðsins um árið 1845 stendur að »stúdent
Jónas Halgrinson1) 3 62) (ára að aldri, dáinn) 26. maí (af) drepi
(— »Koldbrand« — hafi verið grafinn) 31 maí (frá) Friðriks-
spítala (í) Trinitatis (sókn, nr.) 198, S«.
í’egar breytingin var gerð, varð þessi reitur að mestu leyti sami
sem N. 1095; nokkur hluti hans er þó nú í N. 1096, þar eð reitur-
inn var mjókkaður um 1 alin; Trinitatis S, 198 var 4X4 álnir en
N. 1095 er 3X4 álnir.
það verður því ekki sagt alveg með vissu, hvort Jónas liggur nú
heldur 1 N. 1095 eða N. 1096, því að í dagbókinni hefir þess ekki
verið getið, hvorumegin í reitnum hann hafi verið grafinn.
30 árum eftir að Jónas var jarðaður, var grafinn í sama reit
mangari einn að nafni Stryving og 4 ára piltur með, en þess er ekki
við getið hvorumegin í reitnum. Liðu nú enn um 20 ár þangað til
1 f’annig! 8 Rangt; Jónas var fæddur 15. nóv. 1807.