Eimreiðin - 01.05.1905, Síða 16
hreinastur og fegurstur er gotneski stíllinn yfirleitt á Englandi. f’ar er
hann mjög tíðkaður, því Englendingar hafa hvorttveggja góðan lista-
smekk og ráð á að byggja eins og þeim þykir bezt fara. Þegar mað-
ur lítur af góðri sjónarhæð yfir einhvern af hinum ensku stórbæjum.
svo sem t. d. Edinborg, líkist bærinn til að sjá pílviðarskógi, svo marg-
ir eru tumarnir, og svo grannir eru þeir og léttilegir; maður gæti næst-
um því búist við, að þeir svignuðu fyrir golunni eins og tijátopparnir —
Stórfeldustu sýnis-
hornin af gotneska
stílnum áEnglandi eru
eflaust Parlaments-
húsið og Westmin-
ster-kirkjan í Lundún-
um og Skotlandsbanki
í Edinborg. En feg-
ursta og nettasta lista-
verkið, sem ég hefi
séð í þessum stíl, er
ofurltítil kirkja, sem
heitir »Kings Cha-
pel« í Cambridge.
En eins og áður
er sagt hefir dóm-
kirkjan í Köln mest
orð á sér af öllum
gotneskum bygging-
um í heimi, ekki ein-
ungis fyrir fegurð sína
og vandaðan frágang,
heldur og fyrir stærð-
ina. Meiri kirkjubákn
eru sjaldgæt.
Köln getur rakið
sögu sína aftur til
þeirra tíma, er Róm-
verjar réðu löndum
norðan Alpafjallanna
á öndverðri keisara-
DÓMKIkKJAN í KÖLN (vesturgaflinn). öldinni eða um það
leyti er tímatal vort byrjar. Nafnið er leitt af latneska orðinu Colonia
(o: nýlenda) og í bænum eru höfð til sýnis hús og húsabrot, sem eiga
að vera frá dögum Rómveija. Bærinn stendur á bökkum Rínarfljóts-
ins mestallur fyrir vestan fljótið, en þó ofurlítill hluti hans (nýi bærinn)
á eystri bakkanum. Brú liggur á milli borgarhlutanna yfir Rín, sem
þannig er bygð, að skipum er lagt hverju við hliðina á öðru, og brú-
in er bygð ofan á þau. Snúa þau stöfnunum í strauminn og liggja
við akkeri, sem föst eru í fljótsbotninum. Skipaumferð um fljótið er
afarmikil, og þegar skip þurfa að fara um, eru nokkur af skipum þeim,
er bera brúna, leyst úr tengslunum, og flutningsskipunum hleypt í gegn-