Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Side 15

Eimreiðin - 01.01.1910, Side 15
i5 II. Og fagurt ber hún feldinn enn og fallega sér heldur enn, þótt hamist vötn og veður, sem hennar frægu feður við Ford og Holofsinn. Pað glymur hátt í hringunum og höfuðdjásna þingunum: við hreim frá orrahríðum og hljóm frá sigurtíðum frú Uggla svífur inn. III. En eins og smellin lystiskúta líði í ljúfum blæ og elti þungan knör, er sólin blíð í sinni stoltarprýði er svifin fram og gyllir strönd og vör; sem e!ti drotning dætra hennar börn svo dansar fram hin snotra Elsa Örn. Frá hvirfli drósar ljósrauð brosti lilja og línið sænska skein sem mjallhvít hrönn, lík konungsdóttur svífur silkiþilja, sólbjört og há og rétt og bein sem hvönn, eins upplitsdjörf sem aðalborin drós og ástarsjúk sem fátæk sveitarós. Af hvörmum hennar brunnu lofnarlogar í lotum kinna sátu brosin kát, stórmannlegt nefið, blíðir hvarmabogar, brosmildar varir, hakan rembilát. En hvergi var hún hinni lík á svip, því hún var snekkja, amman línuskip. Já, skemtifar, sem fram er sett með sólu og siglir út úr fagursléttri vör, og vaggar eins og bundið barn í rólu að baki skipsins, þess er ræður för. Nú heyrist traðk í tröppunum þótt talið gjalli í köppunum; það brakar silkið síða um sigur fyrri tíða: frú Uggla svífur inn; svo há og breið um herðar, til hæstu frægðar gerðar, og hrukkur heiðursverðar um hávelborið skinn.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.