Eimreiðin - 01.01.1910, Blaðsíða 56
56
til sparað, að gera alt smíði sem vandaðast. Árið 1902 var
smíðinu fyrst lokið og var skipið nefnt Lebaudy eftir bræðrunum.
13. nóv. það ár fór það fyrstu förina. Reyndist það mjög vel
og tók eldri loftskipum langt fram. ?ví varð haldið 3 stundir í
lofti og það gat farið 36 km. (um 5 mílur) á klukkustund; það
gat og siglt á móti vindi, ef vindhraðinn að eins ekki var meiri
en mesti flughraði þess. 1907 gerðu bræðurnir Lebaudy nýtt
loftskip, er nefnt var »La Patrie«, handa frakkneska hernum. Pað
var enn hraðskreiðara, fór 45 km. á kl.stund og gat verið 7 tíma
í lofti. Petta skip mistu Frakkar skömmu síðar; það sleit sig
laust í hvassviðri og barst með vindinum yfir England og Irland
út á Atlanzhaf og hefir ekki sést síðan.
2. Loftskipið »La Patrie«.
Ágæti þessara skipa lá meðal annars í því, hve alt var vandað
til þeirra, bæði efni og vélar. Hreyfivélarnar voru miklu aflmeiri
en áður haiði tíðkast, og tiltölulega léttari. Einnig voru ýmsar
nýjungar á gerðinni. Áður höfðu loftskipin ekki þolað aflmiklar
vélar; þegar reynt var að knýja þau mjög hratt áfram, gætti
mótstöðu loftsins svo mikið, að belgirnir tóku dýfur upp og niður
og geiguðu á ýmsar hliðar, svo skipin létu ekki að stýri. Úr
þessu var bætt á þessum skipum, með því að festa 4 þynnur
aftan í belginn, og þunnan kjöl neðan á hann; fyrir aftan kjölinn
sjást einnig 2 þríhyrndar þynnur á 2. mynd, er önnur þeirra lóð-
rétt, en hin lárétt. Allar þessar þynnur, sem vér getum nefnt