Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Blaðsíða 68

Eimreiðin - 01.01.1910, Blaðsíða 68
68 Kristinn K. Ólafsson, og »Hættan mesta« eftir séra N. Stgr. Thorlaksson, og að lokum kirkjuþingstíðindi frá 25. ársþingi Kirkju- félags Vestur-íslendinga. Var þing þetta næsta sögulegt, með því að þar voru samþyktar ályktanir, sem séra Friðrik Bergmann og hans liðar þóttust eigi mega við una, og fór þá svo, að bæði hann og ýmsir söfnuðir eða klofningar úr þeim sögðu sig úr Kirkjufélaginu. Hefir trúmálabarátta Vestur-íslendinga síðan harðnað að mun og mikið verið um málið ritað í blöðunum, en þó einkum í »Breiðablikum« og »Sameiningunni«. Er vel á vopnum haldið hvorttveggja megin, en þó vígfimin öllu meiri í Breiðablikum, því bæði er, að séra Friðrik kann vel á penna að halda, enda á hann að sumu leyti hægra aðstöðu, þar sem hann hefir tíðarandann sín megin. Eru því mest líkindi til að hans stefna muni sigur úr býtum bera að lokum, En óneitanlegt er samt, að stefna hinna prestanna hefir mjög mikið til sins máls og byggir á traustari trúarlegum grundvelli, þó þröngsýnið sé þar æði- mikið og skynsemi manna og skilningi lítt rúm gefið. En vel er skilj- anlegt, að þeim ói við að leggja leið sína inn á skriðbraut, sem hætt er við að menn renni á æ lengra og lengra og enginn sér fyrir end- ann á. Því hætt mun nýjatestamentinu, þegar hið gamla er fallið fyiir gagnrýninni En hitt er oss lítt skiljanlegt, að nokkur skuli harma klofninginn, sem varð í Kirkjufélaginu, úr því sem komið var. Því auðsætt er, að menn áttu þar ekki lengur samleið, og óbilgjarnt að heimta, að önnur stefnan svínbeygði sig fyrir hinni. Bezt sem komið er. V. G. ÆFINTÝRI FRÁ ÝMSUM LÖNDUM. í’ýtt hefir Adam í>or- grímsson. Akureyri 1909. [1,50]. í safni þessu eru 24 æfintýri, og eru af þeim frá Noregi 8, Schwaben 2, Vestur-Slavóníu 2, Rússlandi 1, Sikiley 3 og frá Ung- verjalandi 1. Öll eru þau allskemtileg, en valið hefði þó getað tekist betur. Ekki þó svo að skilja, að þar sé neitt, sem ekki megi teljast hlutgengt, heldur þykir oss það að. að mörg af þeim eru of lík hvert öðru, sama grundvallarhugsun í þeim. Fjölbreytnin hefði þurft að vera meiri, helzt aldrei nema eitt æfintýri af sama tægi. Gott hefði og verið að strá innan um æfintýrum, sem svo væru skrítin og fyndin, að menn gætu ekki varist hlátri. Það er svo holt fyrir unglingana, sem eiga að njóta þeirra, ekki sízt á afskektum sveitabæjum, þar sem svo hætt er við, að deyfðin og doðinn beri menn ofurliði. Hláturinn hleypir ijöri í menn og upp af því vex aftur framkvæmdarþróttur. Vonandi að þessa verði gætt í 2. bindinu, sem kvað vera á prjón- unum. En þá er íslenzki búningurinn, og er sönn ánægja að sjá, hve hann er góður. Málið er svo hreint, látlaust og eðlilegt, og maður verður þess hvergi var, að æfintýrin séu þýdd úr öðru máli. Slíkt er snild og höfuðkostur á bókinni. Manni verður ósjálfrátt að spyija, hvers konar maður þessi blessaður Adam sé, sem vér aldrei höfum heyrt um getið á ritvelli vorum, og geti þó þýtt svona ljómandi vel. í>vi það vita allir, sem reynt hafa, að meiri vandi er að koma þýð- ingu í fallegan og rammíslenzkan búning, en að frumrita frá eigin bijósti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.