Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Page 50

Eimreiðin - 01.01.1910, Page 50
5° Pá eiga menn eftir að leggja undir sig loftið. Par hafa fugl- arnir til skamms tíma verið einvaldir, og hafa mennirnir frá ómuna- tíð öfundað þá af fluglistinni. Sagnir frá elztu tímum sýna, að mönnum í þann tíð var engu síður hugleikið að nema þessa list, heldur en nú á tímum. En þá voru engin tök á að höndla hnossið. Hugsjónamennirnir einir og skáldin komust það lengst, að skreyta guði sína og söguhetjur með þessari íþrótt. Óðinn reið hesti sínum Sleipni í loftinu yfir láð og lög; Völundur smiður flaug úr varðhaldinu hjá Niðuði konungi, sem lesa má í Völundar- kviðu. Loki flaug í valsham, er Freyja átti, og sótti Iðunni til Jötunheima; jötnar brugðu sér í arnarham og valkyrjur svifu í fuglshömum yfir vígvöllunum. Skýrust er þó gríska sagan um Daidalos, sem flýði frá Krít til Sikileyjar. Hann bjó sér og syni sínum Ikaros til vængi úr fjöðrum, er festar voru saman með vaxi. Sjálfur komst hann heilu og höldnu á vængjum þessum til Sikileyjar, en Ikaros, sem var hreykinn af vængjunum, hætti sér of nærri sólinni, svo vaxið bráðnaði og vængirnir liðuðust sundur, svo hann féll í hafið og druknaði. Er hann að líkindum fyrsta fórnin á altari fluglistar- innar. Aldirnar líða og hugsjónirnar rætast. Jafnvel þessi hugsjón, sem svo lengi hefir virzt liggja mannlegum mætti ofar, er nú á vorum dögum gengin oss í greipar. Uppgötvanir síðustu tíma hafa rutt stærstu þröskuldunum úr vegi og gefa oss góðar vonir um það, að fuglarnir verði ekki hér eftir einvaldir loftsins herrar; að minsta kosti dettur víst engum lengur í hug að taka undir með Jesúítamunknum á 17. öld, sem hélt, að guð mundi aldrei leyfa mönnum að búa til nothæfa flugvél, því það myndi gera svo mikinn glundroða á reglu þeirri, sem ríkt hefði í heiminum frá upphafi. Ef vér rennum augum yfir sögu loftfaranna, sjáum vér, að framfarirnar hafa gengið í tvær áttir, er báðar hafa leitt að tak- markinu. Munurinn liggur aðallega í verkfærum þeim, sem notuð eru til loftfaranna, og greinast loftfarirnar nú á tímum eftir því í tvent: loftsiglingar (aeronautik) og fluglist (aviatik), Til loftsiglinganna nota menn loftför, sem ' eru léttari en loftið niður við jörðina. Pau svífa sjálfkrafa þangað upp, sem loftið er þynnra og jafnt þeim að þyngd. Loftbelgurinn (ballon) er því undirstaða loftsiglinganna, eins og síðar mun sýnt

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.