Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Side 54

Eimreiðin - 01.01.1910, Side 54
54 árum«. En þetta gekk ekki þrautalaust, þegar vetnið eða gasið minkaði í aflöngu belgjunum, vildi það safnast í annan endann á belgnum, svo hann leitaði upp og loftfarið misti jafnvægið. Ur þessu varð fyrst bætt til fulls um 1880 af frakkneskum herfor- ingjum, Renard og Krebs. Peir höfðu innan í aðalbelgnum lítinn belg með andrúmslofti. Eftir því sem gasið minkaði í aðalbelgn- um, var lofti bætt í innri belginn; var á þann hátt hægt að halda gasbelgnum útþöndum. Seinna hafa menn gengið enn betur frá þessu, eins og síðar kemur í ljós, Frakkneskur maður, er Meunier hét, stakk fyrstur upp á því, árið 1785, að nota skrúfu, líkt og á gufuskipum, til að knýja áfram loftskipin;1 þetta fór í rétta átt. En mannlegur kraftur nægði ekki til að hreyfa skrúfuna nógu hratt, og því varð þessi uppástunga ekki að liði fyr en löngu seinna, þegar hreyfivélarnar (mótorarnir) voru svo langt á veg komnar, að hægt var að gera þær við hæfi loftskipanna. Frakkneskur verkfræðingur, að nafni Giffard, bjó fyrstur til loftskip með gufuvél og loftskrúfu, og reyndi það 24. sept. 1852. Vélin reyndist of afllítil. Með henni varð skjpinu að eins vikið lítið eitt frá stefnu vindsins, en ekkert komst það á móti vindi, þó eigi væri nema lítill andvari. 9. ágúst 1884 reyndu tveir frakkneskir herforingjar, Renard og Krebs, loftskip, er þeir höfðu smíðað. Pað het »La France«. Loftskrúfa, sem knúin var með rafmagnsvél, var framan á skipinu. Pað var að ýmsu leyti betur úr garði gert en eldri loftskip, og aflvélin kraftmeiri. Ofurlítill andvari var, þegar skipið var reynt, Peir félagar gátu siglt skipinu móti kulinu og stýrt því; þeir stýrðu því í hring og komu niður á sama stað og þeir höfðu lagt upp frá. þessi för vakti allmikla eftirtekt, því hún markaði dálitlar framfarir í loftskipagerðinni. En mikið vantaði þó á, að menn gætu farið fullra ferða sinna í loftiuu, því eigi verður altaf kosið logn. Enn hafði eigi tekist að smíða hreyfivélar, sem væru nógu aflmiklar til að knýja skipin á móti vindi, þannig að þær um leið væru nægilega léttar. Fyrstu vél- arnar, sem fullnægðu þessum skilyrðum, voru steinolíu- og bensín- 1 Meunier kom einnig um það leyti fram með tillögu í þá átt, að breytalögun loftbelgjanna, og um að hafa loftbelg innan í aðalbelgnum, eins og áður er lýst. En rit hans féllu í gleymsku, og hafa fyrst vakið eftirtekt á síðustu árum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.