Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 57

Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 57
57 ugga, samsvara bakugga fiskanna og stéli fuglanna. Pær kljúfa hæglega loftið og hindra allan slátt til hliðanna, og koma þannig í veg fyrir, að loftskipið taki dýfur. Auk þess hafa þessi skip láréttar og lóðréttar þynnur, sem verða hreyfðar eða sveigðar til ýmsra hliða; með þeim er stýrt. Láréttu stýrisþynnurnar getum vér nefnt hæðarstýri; með þeim verður skipunum stýrt, hvort er heldur vill upp eða niður. Pau eru þýðingarmikil endurbót. Áður höfðu menn eingöngu getað hækkað og lækkað loftskipin með því að kasta út lest og hleypa út gasi á víxl. Til þess að hækka skipið um iooo m., þurfti máske að varpa útbyrðis 4—600 punda þunga. Þetta takmarkaði mjög flugtímann, því gasið eyddist fljótt, og ekki var hægt að hafa meðferðis lest til langrar ferðar, ef oft þurfti að breyta flughæðinni. Úr þessu er mikið bætt með hæðar- stýrinu; með því einu má jafnvel hækka og lækka skipin um 1000 metra. Loftskrúfurnar sjást ekki greinilega á myndinni; þær voru tvær, önnur framan á, en hin aftan á sjálfum loftbátnum. Meðan þessar umbætur voru gerðar á loftförunum á Frakk- landi, starfaði Zeppelín greifi af kappi að umbótum þeirra á Pýzka- landi. Zeppelín er fæddur 8. júlí 1838. Hann gerðist hermaður og gat sér góðan orðstír í ófriðnum 1870—71 fyrir dugnað og áræði. Snemma fór hann að hugsa um umbætur á loftskipunum. Árið 1895 var hann loks kominn að ákveðinni niðurstöðu, og lagði þá áætlanir sínar fram fyrir Vilhjálm keisara. En tillögurnar fengu lítinn byr og lá við sjálft, að menn skopuðust að honum fyrir. Zeppelín lét það ekki á sig fá, hann bjó sér til smíðahús út á Bódenvatni og byrjaði á fyrsta skipinu 1898. Árið 1900 var smíðinu lokið. Fór Zeppelín á því þrjár loftferðir, og gekk engin þeirra skrykkjalaust. Kom það skjótt í ljós, að mikilla umbóta þyrfti við, ef skipið ætti að verða að liði. Nú var Zeppelín búinn að eyða sínu fé í smíðarnar, og varð því að leita stuðnings hjá öðrum, til að geta byrjað á nýju skipi, Var það ekki byrvæn- legt eftir þessi óhöpp. Pá fréttist um afrek Julliots á Frakklandi. Vildu þjóðverjar fyrir engan mun vera eftirbátar Frakka í loft- skipagerðinni. Zeppelín fékk fé til smíðanna og hóf ferðir á nýju skipi 1906; 17. janúar lagði hann upp frá Bódenvatni. En óðar komu ýms óhöpp fyrir, skipið tók miklar dýfur, stýrið var oft í ólagi. Varð Zeppelín þá að snúa til jarðar aftur. Og skömmu síðar stórskemdist loftfarið af hvassviðri.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.