Eimreiðin - 01.01.1910, Blaðsíða 59
59
Pví miöur átti skip þetta ekki langa æfi fyrir hendi. 4. ágúst
lagði þaö upp í langferð suöur eftir Rínardalnum og sveif yfir
borgir og bæi. Um morguninn 5, ágúst varð það að nema staðar
nálægt Stuttgart. Hafði það þá farið 6—700 km. og að eins
einu sinni stöðvast áður. Nokkru eftir að lent var, kom hvirfil-
bylur og hreif skipið með sér; múgur og margmenni þusti á eftir
því, til að reyna að ná í festarnar, og stöðva það; í sömu svifum
heyrðist hvellur frá skipinu, belgirnir sprungu og alt hvarf í reyk
og svælu. Pegar greifinn og mannfjöldinn kom að, stóð skipið
í björtu báli og eyðilagðist á svipstundu. Greifinn tók ofan og
horfði klökkur á leifarnar. Má geta nærri, hvort honum háöldr-
4. »Zeppelín 1V« svífur yfir Strassborg.
uðum hefir ekki fallið þungt, að sjá þannig hið mikla verk sitt að
engu orðið, verk, sem hann hafði barist fyrir mikinn hluta æfi
sinnar og ávalt hafði bakað honum vonbrigði, þangað til þessa
síðustu daga.
En nú stóð Zeppelín ekki lengur einn uppi, allir landar hans
vildu styðja hann; samskot voru hafin um alt Þýzkaland og mii-
jónir marka söfnuðust handa honum á fám vikum. í október um
haustið gat hann hafið loftferðir að nýju, og síðan hefir alt gengið
slysalaust.
Á 4. mynd sjáum vér Zeppelín IV. svífa yfir Strassborg á
síðustu ferð sinni. Aðalbelgurinn var 140 m. (225 ál.) langur, en