Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Page 62

Eimreiðin - 01.01.1910, Page 62
6 2 Rit sj á. JÓN TRAUSTI: SMÁSÖGUR. i. h. Rvík 1909. Fjórar fyrstu sögurnar eru áður kunnar, tvær hinar síðustu nýjar. En mér var ánægja að lesa þær nú hverja á eftir annarri, og þegar ég lokaði kverinu, varð mér ósjálfrátt að bera höfundinn saman við söguhetjuna í »Kappsiglingin«, síðustu sögunni. ^Þessi snekkja er gerð fyrir andbyrinn« — — — »Og hún er traust« — — — »Hann hefir góða seglfestu«. Mér fanst það eiga við höfundinn sjálfan. Tvær fyrstu sögurnar, »Friðrik áttundi« og »Tvær systur», virðast mér að vísu hafa lítið skáldlegt gildi; en það var rétt af höf. að láta þær verða hinum samferða. t’ær eru fyrstu sögurnar, sem hann hefir ritað, og það er fróðlegt að sjá muninn á þeim og hinum, sjá hve óðfluga framfarirnar hafa verið. Höf. getur þess í formála, að þessar tvær sögur styðjist við sanna atburði, hinar ekki. Athugull lesandi mundi hafa getið sér þess til, en það er gaman að vita það af orðum skáldsins sjálfs, þvi verkin sýna merkin. Hann hefir verið bundinn af sérstökum endurminningum, fært þær í stílinn, sagt frá, en ekki þorað að skapa af frjálsu fullveldi. En sögur eru sjaldan skáldlegar, þó skáldsögur geti verið sögulegar. í skáldskap er það oft sannast, sem aldrei hefir við borið. Og undir eins og höf. hefir gefið sínu frjósama skáldeðli lausan tauminn, kemur hver persónan annarri einkennilegri, sannari og íslenzkari fram á sjónarsviðið. Sigmundur gamli vökumaður, Sigurbjörn sleggja og Eyrar-Oddur verða lesandanum eins gagnkunnir og minnisstæðir og þó þeir væru gamlir kunningjar. Ég hef aldrei séð Sigurbjörn sleggju, og þó finst mér eins og skuggi hans hafi ein- hvern tíma fallið á sál mína, þegar ég var barn, og vakið mér hroll og geig. Gaman er að sjá, hve ólíku holdi andi rímnanna hefir klæðst með þessum tveimur körlum, Sigmundi vökumanni og Sigurbirni sleggju. En perlan er Eyrar-Oddur. Éeir, sem altaf eru að hnýta í ís- lenzku Jóns Trausta, ættu að lesa »Strandið á Kolli« og segja, hvernig þeir vildu láta Eyrar-Odd tala öðruvísi, en hann gerir. í mínum eyr- um er hvert hans orð svo eðlilegt, hver setning svo mótuð af persón- unni, sem talar, að mér finst ég heyra hreiminn í röddinni og sjá karlinn lifandi, þar sem hann situr á þóftunni. Það er slíkur sólskinsglampi yfir efnismeðferð þessarar sögu, blærinn svo hreinn og þýður, að ég hika ekki við að telja hana með beztu smásögum, sem ritaðar hafa verið á íslenzku. Gubm. Finnbogason. JÓHANN SIGURJÓNSSON: BÓNDINN Á HRAUNI. Leikrit í 4 þáttum. Rvík 1908. Efnið í leikriti þessu er hvorki mikið né margbrotið, en þó að sumu leyti átakanlegt. Hjónin á Hrauni, Sveinungi og Jórunn, eru ný- komin heim úr kaupstaðarferð, og 1 þeirri ferð hafa þau heitið ungum

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.