Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 69

Eimreiðin - 01.01.1910, Síða 69
69 Stjórnarráðið ætti að fá þennan Adam til að kenna íslenzkan stíl við mentaskólann, Máske fleiri gætu þá skrifað móðurmálið sitt stórlýta- laust, sem þaðan koma. V- G. LAUFEY VILHJÁLMSDÓTTIR: NÝJA STAFRÓFSKVERIÐ I. Khöfn 1909. þetta stafrófskver er allmjög frábrugðið eldri stafrófskverum. Er þar ætlast til, að barninu sé kent jafnsnemma að lesa og skrifa, og kverið því byijað með skrifletri. Pá er og barninu kent að þekkja stóru stafina samhliða hinum smáu. Orðin í kverinu er flest eins — eða tveggja samstafna orð, en þó svo valin, að þau gefi fulla meiningu, en verði ekki nein endileysa, eins og stundum hefir sést í sumum eldri íslenzkum stafrófskverum. Kverið er og prýtt allmörgum mynd- um eftir Ásgrím Jónsson málara, og auka þær að mun skilning barn- anna og áhuga, þar sem þær eru í fullu samræmi við lestraræfing- arnar. Prentun og frágangur allur er 1 bezta lagi, og kverið mjög líklegt til að vinna sér miklar vinsældir. V. G. þjÓÐTRÚ OG f’JOÐSAGNIR. Safnað hefir Oddur Björns- son. Jónas Jónasson bj ó undir prentum. Akureyri 1908. Bókin er þannig til komin, stendur í formálanum, að Oddur prentari á Akureyri eignaðist mikið og merkilegt þjóðsögusafn árið 1906 frá Sigfúsi Sigfússyni á Eyvindará í Suður-Mulasýslu. f*ær sagnir voru flestar þaðan að austan. f’ví var það, að Oddur fór að safna sögum í öðrum landsljórðungum og hefur honum nú unnist það á á tveim árum að krækja í kynstrin öll af sögum. Bókin verður fá- dæma stór. Safn Sigfúsar eitt er miklu stærra en allar þjóðsögur Jóns Árnasonar. Jónas skáld Jónasson frá Hrafnagili hefur raðað sögunum eftir nýju kerfi, sem hann hefur búið til sjálfur. Hann skiftir sögunum í 5 flokka eftir efni; hver flokkur greinist aftur í aðra smærri. Það yrði of-langt mál, ef ég færi að segja frá því, hvernig þessu er fyrir komið, en eftir því, sem ég fæ séð, er skiftingin glögg og greinileg, miklu betri en það, sem ég hef séð áður á þjóðsögum, innlendum og út- lendum. Aðalkaflarnir verða: I. Manneðlissögur. II. Náttúrusögur. III. Viðburðasögur. IV. Venjur, þjóðsiðir og þjóðtrú. V. Þjóðkvæði. Mér er ekki fullljóst, hvernig á að haga útgáfunni. í þessU bindi eru sagnirnar úr þremur fyrstu flokkunum. í formálanum segir Jónas, að þetta bindi eigi að vera sýnishorn af safninu, en seinna komi fleiri bindi á eftir, og þar verði »flokkunum haldið saman« og ná- kvæmari formálar og skýringar með hverjum flokki. Hvernig á að skilja þetta? Eiga seinni bindin að vera með samskonar köflum í hverju bindi eða verður framhaldið af bókinni með heilum flokkum í röð ? Eigi bókin að vera margflokkuð í hveiju bindi, þá skil ég ekki, hvernig raðandi ætlar að »halda flokkunum saman«. Eigi bókin að vera í áframhaldi með heilum köflum í lotu, þá skil ég ekki þetta fyrsta bindi af bókinni. Það yrði skringileg bók, þar sem fyrsta bindið væri hrafl úr allri bókinni. Ég býst ekki við, að þetta bindi eigi að prenta upp aftur og setja úr því hveija sögu inn í heildina á

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.