Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1910, Page 73

Eimreiðin - 01.01.1910, Page 73
73 skuli eigi sjálfir starfa neitt að þeim. Síðan Þorv. Thoroddsen hætti rannsóknarferðunum 1898 hefir enginn annar íslendingur kannað öræfi eða ritað neitt um landfræði íslands, svo kunnugt sé; en Pjóðveijar hafa síðan að nokkru leyti og Danir stórkostlega aukið þekkinguna á staðalýsingu og landfræði íslands. Uppdrættir herforingjaráðsins eru fyrirmynd að nákvæmni og fegurð og hafa fengið mikið lof í öðrum löndum, og þegar þeir ná yfir land alt, má rneð fullum sanni segja, að Island sé komið í tölu siðaðra landa, því verklegar framfarir og staðgóð þjóðarmenning eftir nútíðarsniði verður alstaðar að byggjast á góðum mælingum. Þ- Th. HEINRICH ERKES : AUS UNBEWOHNTEN INNERN ISLANDS. Dortmund 1909. Þetta er sama ritgerðin og að framan er getið í ritdómi próf. Þorv. Thoroddsens, en hér gefin út í bókarformi, endurbætt og með talsverðum viðaukum. Er þar framan við skeytt þýðingu á hinum skáldlega inngangi að sögu Jóns Trausta Heiðarbýlið I, en aftan skýrslum um eldri rannsóknir á Dyngjufjöllum og Öskju, bæði úr »Fréttum frá íslandi« 1875, úr ferðasögu Watts Vatnajökulsfara, úr »Norðlingi« 1876 og úr bók Hreindýra-Locks um Öskju. Síðast er þar skrá yfir alt, sem ritað hefir verið um Öskju bæði á íslenzku, dönsku, ensku og þýzku, og ennfremur yfir ferðabækur og önnur alþýðleg rit, sem út hafa komið um ísland á útlendum tungum síðan um aldamótin 1900. Er frá öllu þessu prýðisvel gengið, og sú eina ónákvæmni, sem próf. Þ. Th. bendir á í ritdómi sínum, hér leiðrétt. V G. HALLA, saga JónsTrausta er nú komin út í danskri þýð- ingu eftir frú Helgu Gad (dóttur J. Havsteens amtmanns) og gefin út á kostnað Hagerups bókaverzlunar í Khöfn. Framan við þýðing- una er formáli eftir meistara Holger Wiehe, þar sem hann fer nokkrum orðum um sagnaskáldskap íslendinga og skýrir frá ritum Jóns Trausta, sktrnarnafni hans og æfiferli. Að því er vér fáum séð (án þess að bera saman við frumritið), er þýðingin hin bezta af hendi leyst, og 'þó ekki vandalaust að klæða jafn-rammíslenzkar staðháttalýsingar úr sveitalífi voru í viðunandi dansk- an búning. Alveg samsvarandi orð og heiti stundum ekki til í dönsk- unni, af því það, sem þau tákna, er ekki heldur til í Danmörku. Af ritdómum í dönskum blöðum höfum vér átt kost á að sjá allmarga, og er í þeim yfirleitt látið vel af henni, sagt, að hún sé ein- kennileg og aðlaðandi, en þó nokkuð langdregin, og gefi ágæta hug- mynd um nútíðarlíf og hugsunarhátt íslendinga. Skapferlislýsingar séu þar góðar og á ástalífi Höllu sé tekið með þýðum og mjúkum höndum, án þess að þar sé nokkrum sora hleypt að, sem menn eigi svo oft að venjast í dönskum sögum. Bókin eigi því skilið að fá marga lesendur. — í sumum ritdómum um »Ofurefli« er þess getið, að meira snildarbragð sé á einstökum lýsingum í þeirri bók, en heild- arþráðurinn fult eins vel spunninn í »Höllu«. V. G.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.