Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Síða 33

Eimreiðin - 01.05.1911, Síða 33
109 að hugsa um, að hann ætti aldri að sjá litla drenginn sinn fram- ar? Eina barnið sitt. Og mjúku höndina hennar mömmu, sem aldrei átti að fá að þíða framan úr honum snjóinn eftirleiðis? — En það gat ekki verið. Jesús hlaut að frelsa pabba. Bjarga honum til okkar aftur. Jesús var svo góður. Og þótti svo vænt um litlu börniti. Eað var alveg áreiðanlegt. Hún mamma sagði það. Byiurinn fór heldur versnandi, ef nokkuð var. Augun litu burt. Ut í snjórökkrið. Mér virtist, sem þau væru að leita að guði. Eað var svo sárheit bæn og heimtandi von í augnaráðinu. Á því augnabliki bjóst ég við, að guð myndi koma gang- andi á sjónum til að frelsa okkur. Og traust mitt á honum varð aftur svo sterkt og bjart. Eins og þegar ég lá í fanginu á mömmu. Og hún var að segja mér frá litla barninu, sem fæddist austur á Gyðingalandi fyrir fjöldamörgum árum. Ósjálfrátt leit ég fram. í sömu átt sem hann. Og öll sál mín varð ein bæn. Himinrjúfandi grátbæn barnshjartans------------ Pað rofaði allrasnöggvast til. Hríðin lá ekki eins fast ofan á okkur. Á stjórnborða grilti í svartan vegg. Ógnarháan, gleyp- andi múr. Eórshamra hjá Steinavík................ Við bárumst óðfluga að. Og alt í einu rann upp fyrir mér, að nú væri ómögulegt að bjargast. En ég vildi ekki trúa því. Ætlaði guð þá ekki að gera neitt? Ekki að hreyfa hönd eða fót? Mér varð litið á pabba. Hann hafði séð hættuna. Að ekk- ert varð við gert. Hann var náhvítur í framan. t'að fóru kippir um andlitið. Og ég fann sjálfur, hvernig trúin og vonin hjöðnuðu í huga hans. Urðu að engu. En örvæntingin settist þar að, gustköld og geigvænleg . . . — »Pabbi!« kallaði ég. Mig langaði svo til að láta hann vita af mér. En hrópið sogaðist burt af veðurgnýnum og öldu- skellunum. Hafi ég þá komið því upp. Eg heyrði það ekki sjálfur. fað syrti enn meir. Hamrarnir hurfu aftur í grádökkan hríð- arvegginn. — Eá var eins og eitthvað hryndi innan í mér. Guð var ekki lengur hjá mér. Hann var kominn svo hræðilega langt í burtu. Eitthvað út í buskann. Sat þar kaldur og glottandi. En ill öfl vóru komin í staðinn. Miklu verri en Grýla og Leppalúði. 8

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.