Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Side 70

Eimreiðin - 01.05.1911, Side 70
146 nokkurnveginn sjá um, aö ekki sé vikið frá hinu gildandi ríkis- sambandi af hálfu Islendinga. Paö eru Islendingar einir, sem breytinguna heimta. Og jarlsstjórnarhugmyndin er ekki dönsk, heldur íslenzk uppáhaldshugmynd. Jafnvel ég, sem nú álít, aö semja beri um hana, ef íslendingar æskja ýess, hefi enn þá áriö 1907 verið því mótfallinn, að eiga nokkuð við hana, af því ég þá enn vonaðist eftir, að íslendingar svo skömmu eftir stjórnarskrár- breytinguna 1903 mundu láta sér núverandi skipulag lynda, aðeins með fáeinum lítilsháttar formbreytingum; og ég kaus heldur aö una því, sem er, en að lagt væri út í nýja, tvísýna stjórnarbar- áttu. Ef því íslendingar heldur en að hallast aö því skipulagi, sem þeir sjálfir hafa svo margsinnis og þráfaldlega heimtað, fremur vilja una við núverandi ástand, þar sem sjálfstjórn þeirra er tak- mörkuð við ákveðin sérmál. og þessi sérmál eiga að berast upp í ríkisráði Dana, þá verður af danskri hálfu náttúrlega ekkert haft á móti því, að halda áfram því lögfulla skipulagi, sem íslendingar sjálfir hafa í reyndinni, og 1902 og [903 með berum orðum. viðurkent. Ritsj á. ÞORV. THORODDSEN: LÝSING ÍSLANDS II, 2. Khöfn 1910. I þessu hefti er fyrst framhald af kaflanum um brennisteinsnám- ur (sbr. Eimr. XV, 235) og því næst stutt ágrip af jarðfræði íslands (ísl. bergtegundir, fornar jökulmenjar, sævarmenjar, yfirlit yfir mynd- unarsögu landsins). Þá kemur steinaríkið (og þar á meðal um surtar- brand, mókol, silfurberg, rauða o. fl.) og síðan um loftslag á íslandi (yfirlit yfir almer.t veðráttufar og árferði), og eru þar margar veður- fræðisskýrslur og töflur, sem aldrei hafa fyr sést á prenti. Margt er þar og af myndum og uppdráttum til skýringar og jafnan sögulegt yfirlit yfir umliðnar aldir, þar sem slikt á við. Mun alþýðu manna ekki þykja sízt gaman að lesa kaflana um steinaríkið, veðráttufar og árferði, því þar ber margt á góma, sem öllum er gott og gagn að vita rétta grein á, en hugmyndir manna um margt af því óljósar og öfugar, sem valdið hefir hjátrú og oftrú hjá fáfróðum mönnum. V G.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.