Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1911, Qupperneq 79

Eimreiðin - 01.05.1911, Qupperneq 79
*55 C. KÚCKLER: IN LAYAVtTSTEN UND ZAUBERWELTEN AUF ISLAND. Berlin 1911. t’að er allstór bók þetta, 233 bls. í stóru broti og aftan við 70 myndatöflur með 107 myndum og 4 uppdráttum. Hún er í flmm köfl- um, og er binn fyrsti um ferðina til íslands (1909) og þó mest um Fær- eyjar, 2.-4. um ferð á Snæfellsnesi, frá Búðum til Stapa og þaðan yflr jökulinn til Olafsvíkur og síðan til Stykkishólms. Og í 5. kaflanum er sagt frá ferð til Krýsuvíkur og annarri upp að Tröllafossi. Manni flnst efnið lítið í svo stóra bók, en meistara Kiicbler tekst meistaralega að teygja úr því, enda er þar sagt frá bverju smáræði, sem bar fyrir augu og eyru. En mikilsháttar var það nú ekki annað en náttúrudýrðin og torsótt lending á Búðum í ógurlegu hafróti. Já, eitt enn: húðarklár, sem hann fékk lánaðan á Búðum undir ferðatösku sína, strauk fjórum sinnum frá honum í ferðinni yflr nesið, og mun því sá klár frægur verða um alt þýzkaland, jafnmikið og um hann er skrifað. Meistari Kuchler er mjög hriflnn af náttúrufegurðinni og lýsingar hans með svo sterkum litum, að þær eru líklegar til að drags margan ferðamann til Islands. Öllum ber hann og vel söguna, sem hann hitti eða komst í kynni við, og skín góðmenska hans og ást til Islands út úr hverri línu. V. Gr. KNUD BERLIN: ISLANDS STAATSRECHTLICHE STELLUNG. Berlin 1910. Bók þessi er þýzk þýðing á hinu danska riti dr. Berlíns um ríkis- réttarstöðu Islands, er getið var í Eimr. XV, 151, en breytingar ekki teljandi. Dó er á einstöku stað tekið nokkuð tillit til athugasemda próf. B. M. Olsens i ritgerð hans „Enn um upphaf konungsvalds á Islandi“; en af gagnrjuii dr. Jóns forkelssonar kveðst höf. ekki hafa fundið ástæðu til að taka annað til greina, en leiðrétting á einni prentvillu, sem hann hati fundið hjá sér í dönsku útgáfunni. V. G. UM VERÐLAG NORÐMANNA Á SÖGUÖLDINNI („Norges okono- miske System og Værdiforhold i Middelalderen“, Kristiania 1909) hefir Fr. Macody Lund ritað einkar merkilega bók, þar sem hann með ljós- um og óyggjandi rökum sýnir, að verðlag á ýmsum vörutegundum hafl verið afarmismunandi í hinum ýmsu bygðum landsins, einkum á hZut- fallinu milli smjörverðs og kornverðs. En einmitt við smjör og korn var flest annað verðlag þar miðað. Munurinn var svo mikill, að í beztu akuryrkjuhéruðunum mátti fá alt að því 15 merkur af korni fyrír 1 mörk smjörs, þar sem aftur smjör og korn uppi til fjalla og í nyrztu héruðum landsins var nálega jafndýrt, af því kornyrkjan var þar svo lítil og sum- staðar engin, en samgöngur allar svo erflðar til að ná því til sín frá hin- um kornfrjórri héruðum. Af þessu leiðir, að mörg verðlagsheiti í fom- ritunum verður oft að skýra á alt annan veg, en hingað til heflr gert ver- ið, meðan menn álitu, að verðlagið hefði verið hið sama um endiiangan Noreg. Bókin gerir því allmikið umrót í þessum fræðum og greiðir úr mörgum flóknum gátum, sem hér yrði of langt frá að skýra, enda lítt mögulegt í stuttu máli. En þó að stórmikið sé unnið við þessa bók hans, og margt nú orðið skýrara um hið forna verðlag, þá er þó enn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.