Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 4

Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 4
4 lætur af stjórn þess. En þó eru til undantekningar frá ein- ræði bónda yfir félagsbúinu. Fyrst og fremst hefir hann, eins og þegar er drepið á, engín umráð yfir sjálfsaflafé konunnar, sem þó heyrir til félagsbúinu. í annan stað getur bóndi ekki, án samþykkis konu sinnar, fargað, veðsett eða leigt með óvenjulegum kjörum fasteignir, sem konan hefir lagt í búið þann veg, að heimildarskjölin fyrir fasteignunum hljóða á nafn hennar. Hljóði t. d. lóðseðill fyrir erfðri eða afsalsbréf fyrir keyptri jörð á nafn konunnar, þá getur bóndi.ekki ráðstafað þeirri jörð einn. — Og að sínu leyti eins getur bóndi ekki afhent, veðsett eða kvittað skuldabréf, sparisjóðsbækur eða önnur lík v e r ð b r é f, er hlýða nafni konu hans, án samþykkis hennar. Aftur a móti geta skuldheimtumenn bónda gengið að slíkum fasteignum og verðbréfum konu hans, án samþykkis hennar, en ekki að sjálfsaflafé hennar. Fasteigna- og verðbréfavemdin er því í rauninni ekki mikils virði. — Bóndi má heldur ekki, án samþykkis konu sinnar, gefa nokkurt ár meira en 5°/o af skuldlausum eignum félagsbúsins. — Og loks má bóndi ekki seljast arfsali (gefa prófentu sína) nema með vitund og vilja konu sinnar. Á hinn bóginn getur bóndi frjálst ráðstafað öllum ö ð r u m eignum, er konan kynni að hafa lagt í búið, en nefndum fast- eignum og verðbréfum, svo sem reiðufé og lausafé, og ennfremur fasteignum og verðbréfum konunnar, sem eru ekki nafnfest henni. Og aðrar ráðstafanir hans en gjafir og arfsal eru engum böndum bundnar, enda báðar fágætar, og hömlurnar í þeim efnum þegar af þeirri ástæðu marklitlar. Hins vegar getur húsfreyja að eins í stöku falli, eða því að eins, að alveg sérstaklega standi á, ráðstafað eign félags- búsins eða samið svo, að samningsaðili hennar geti haldið sér að bónda eða félagsbúi þeirra. Konan hefir á hendi innanhússtjórn og er því talin geta ráðið hjú til óhjákvæmilegra húsverka og með venjulegum kjörum. Og enn er hún talin geta skuldbundið félagsbúið »til sameiginlegs gagns og sakir óhjákvæmilegra nauð- synja*, eins og lögin orða það. En sem dæmi þess, hversu dóm- stólar hafa skilið þessi orð í landi, sem býr við samskonar lög í þessu efni og hér gilda, má geta þess, að kona var ekki talin geta skuldbundið bónda sinn til að svara til skuldar hennar fyrir tennur, er hún hatði pantað í munn sér, og tennurnar eftir því

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.