Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Blaðsíða 50

Eimreiðin - 01.01.1917, Blaðsíða 50
5° þjóta* (57) f. í augum þínum lít ég leiftur þjóta; »una við bros og ljóma augna þinna« (58) f. við bros og ljóma una augna þinna; »unz líður skýjum hulinn lífs míns dagur (73) f. (betra) unz skýjum hulinn líður l'fs míns dagur; »nú fyrir sjónum mínum sýnist rofa« (134) f. nú fyrir mínum sjónum sýnist rofa; »og hjarta mínu brimið huggun gefur* (134) f. og hjarta mínu huggun brimið gefur. í öllum þessum dæmum mun hvert bragnæmt eyra finna muninn, og að stuðlarnir stauda ekki á réttum stað í kvæðunum, þó lítið beri á því í einu eða tveimur af dæmunum. En þetta eru viðvaningsgallar, sem sjálfsagt lagast fljótt, þóit illa gengi öðru eins stórskáldi og dr. Grími Thomsen að verða laus við þá. Rímgalla teljum vér það og, að nota í og sk (eða st) sem stuðla í sama vísuorði (t. d. »þar syngur fugl í skógarrunni,« bls. 18), sem kemur allvíða fyrir í þessum kvæðum. En verri er þó sá rímgallinn, þegar höfuðstafur er látinn vera í smáorði, sem á að réttu lagi að vera áherzlulaust, t. d. »á litla, fríða, munninn þinn« (31), »sín ástar- ljóð að fagna þér« (18), »unz hallar degi og nóttin byrja fer« (58), »þitt nafn í heimskra munni ér forherðing* (134). Hverjum sem les þessi 4 vísuorð útaf fyrir sig, hlýtur að finnast, að höfuðstafimir í þeim muni vera /, d, h, og n, í litla, ástarljóð, hallar og nafn, því þar á höfuðstafurinn að standa í vísuorðunum. En undanfarandi stuðlar sýna, að ætlast er til, að höfuðstafirnir séu á, s, u og />. Gölluð er og þessi vísa: Hjartarætur hrygðin sker, en oft þó læt ég yfir þér héðanaf græt ég með þér valla, angurstár um nætur falla. Mundi ekki síðasta vísuorðið eiga að vera: af angri um nætur árin falla — eða eitthvað á þá leið? Málið er yfirleitt gott og vandað, svo að varla sér blett né hrukku. Eiustakar undantekningar eru: »innispertur« (44), »höndinni« (113) f. hendinni, og »ég dreymi« (63, 73, 74) f. mig dreymir. Af prentvillum eru 3 leiðréttar aftan við bókina, en fleiri eru þær til, ef vel er leitað, t. d. »veltinga« (49) f. vetlinga, »mína« (52) f. mín, »er« (54) f. ert, »gluggunn« (107) f. gluggann, »vildurðu« (107) f. vildirðu og »sitjast« (109) f. setjast. Menn kunna nú að kalla þetta sparðatíning og segja um þennan ritdóm, eins og faðir unga skáldsins kvað: »t(ndi spörðin eg held öll, en eftir skildi berin«. Og þessu fer ekki mjög fjarri. En þetta er með vilja gert. Vér höfum trú á því, að höf. sé efni í skáld, og vitum, að hann hefir hug á að vanda sig og láta sér fara fram. En þá er meira áríðandi fyrir hann, að bent sé á gallana, en að gengið sé þegjandi fram hjá þeim og honum hossað eða hann »teygður á eyrunum« með oflofi. Hins dyljumst vér ékki, að meira hefði mátt fjölyrða um kostina og tilfæra einnig dæmi þeim til sönnunar. En rúmið leyfði ekki hvorttveggja, af því Eimr. jafnan verður að hafa ritdóma sína stutta. En á öðrum stað í þessu hefti flytjum vér sögu, sem vér vonum að lesendur vorir telji hlutgenga og næga sönnun þess, að höf. sé upprennandi söguskáld og ekki illa í ætt skotið. V. G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.