Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Blaðsíða 59

Eimreiðin - 01.01.1917, Blaðsíða 59
59 Árið 1901 nam útflutningur fiskiafurða ekki nema rúml. 5 milj. kr., eða um 56°/o af verði útfluttu vörunnar þá. Útflutningur land- búnaðarafurða, sem 1901 ekki nam nema 1,9 milj. kr. (og 1912 tæpl. 33/;4 milj.), var 1913 komin upp í 5,3 milj. kr. eða hafðinálega þrefaldast síðan 1901. Stafar sú hækkun nokkuð af auknum útflutningi á flestum landbúnaðarafurðum, en þó miklu mest af hækkuðu verði á þeim, og er það gleðiefni. Af einstökum vörutegundum, sem út- flutningur hefir mest aukist af, má nefna saltkjöt (1913: 1,9 milj. kr., en 1904 ekki nema rúml. ^/2 milj.), smjör (1913: 295,000 kr., en 1904 ekki nema 165,000 kr.), sauðargærur saltaðar (1913: 891,000 kr., en 1904 ekki nema 221,000 kr.) og ull (1913: 1,748,000 kr., en 1904 ekki nema 948,000 kr.). Af tolltekjum landsins 1913 nam vínfanga og gosdrykkjatollur 21,734 kr., tóbakstollur 219,328 kr., kaffi- og sykurtollur 532,973 kr., te- og súkkulaðitollur 36,275 kr., vörutollur 388,194 kr., útflutnings- gjald af fiski og lýsi 166,599 kr., og af hvalafurðum 8,211 kr. Alls námu tolltekjumar þannig 1,373,314 kr. (þar af aðflutningsgj. 1,198,504 kr. og útflutningsgj. 174,810 kr.). Verzlanir voru 1913 alls 538, og af þeim 463 innlendar, en 51 útlendar. Verzlunarskuldir landsmanna 31. des. 1913 námu rúml. 61/* milj. kr. (6,548,351 kr.), en innieign þeirra hjá verzlununum nam aftur nál. I1/* milj. kr. (1,496,010 kr.), svo að skuldirnar sjálfar hafa ekki numið nema 5 milj. kr. V. G. íslenzk hringsjá. ARNE MAGNUSSON: BREVVEKSLING MED TORFÆUS (ÞORMÓÐUR TORFASON). Udgivet ved Kr. Kálund. Khöfn 1916. Rit þetta er 448 + XXXII bls. í stóru broti, og eins og embættisbréf Árna (sbr. Eimr. XXII, 234) gefið út á kostnað Carlsbergssjóðsins, með góðum skýringum og athugasemdum og sérstaklega fróðlegum formála, sem gefur ágætt yfirlit yfir æfi og ritstörf Þormóðar og samband hans og afstöðu til Arna Magnússonar. Eru í safninu alls 174 bréf, 70 frá Árna, en 90 frá Þormóði og 13 frá konu hans til Arna. Lýsa bréfin vel, hve mikill munur hefir verið á þessum tveimur fræðimönn- um. Árni fullkominn vísindamaður og sígagnrýninn, en formóður fullur hjátrúar og hindurvitna og í rauninni enginn vísindamaður, þótt hann yrði sagnaritari Dana- konungs og afkastaði talsvert miklu. Og þó hefði skorturinn á allri gagnrýni komið en berar fram í ritum lians, ef Arni Magnússon hefði ekki leiðbeint honum og lagfært gallana, þar sem hann gat því við komið. V. G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.