Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Qupperneq 22

Eimreiðin - 01.01.1917, Qupperneq 22
22 og út úr hrukkunum, sem afskræma alt andlitið, má lesa sögur um þögult og djöfullegt kaldlyndi. þegar kínverska konan að lokum hefir náð þeim þroska, sem hún nær, þá má líkja henni við beiskan og hálfskrælnaðan ávöxt, sem má heita óætur. Þessum óöfundsverða þroska hefir hún náð, eftir að hún sjálf hefir þolað margra ára þjáningar, en því næst komið sams- konar þjáningarbagga á herðarnar á öðrum. Þegar svo er kómið sögunni, er hún útlits eins og nú var lýst, svo að flestir hræðast hana, líkt og ljóta vofu, sem hollast er að forðast. En þrátt fyrir alt þetta, þá var það, »að hún hafði hárið«, þessi gamla, andstyggilega skrælnaða kerling! í 60—70 ár staulaðist hún áfram alla sína aumu æfi á mis- þyrmdu löppunum sínum, og í hverju skrefi kendi hún til. Ef segja á í stuttu máli helztu æfiatriði hennar, þá eru þau þessi, sem nú skal greina, og sömu söguna má segja um flestar kínverskar konur: • þegar hún fæddist í heiminn var henni tekið með önugum orðum, fyrir það að hún var ekki drengur. Og þó hún kæmist .hjá því, að verða drekt í laugarkerinu, eða seld mansali, eins og oft bar við fyrrum, þá var hlutskifti hennar fljótlega ákveðið fyrirfram; þvf fárra daga gömul var mærin föstnuð einhverju sveinbarni, og kváðu foreldramir svo á, að þau skyldu eigast, ef þau næðu þeim aldri. Síðan voru fætur hennar reifaðir, og hún varð að þola þær helvízku kvalir, sem allar aðrar stúlkur urðu að þola. Við rúmgafl húsfreyjunnar er geymdur vöndur, sem hún tyftar með dætur sínar, ef þær skæla of hátt á næturnar og trufla svefn hinna fullorðnu. Telpu-aumingjarnir hafa fundið upp á því, að láta fæturna liggja upp á harðri rúmbríkinni, til þess á einn eða annan hátt að valda sér sársauka, í þeim tilgangi, að draga úr kvölunum f fótunum, sem eru reyrðir viðjum. Margar fá drep í fæturna, eða blástur hleypur í þá, svo þær deyja, áður en hepnast hefir að koma fullum kyrkingi í fæturna. fað er ekki alstaðar í Kína, að fætur stúlknanna eru reyrðir, en hinsvegar er það í sumum sveitum algengt, að sama jafnvel er látið ganga út yfir stúlkurnar af lægstu vinnufólksstéttunum. í Norður-Kína má sjá almúgakonur skrfða á hnjánum við vinnu úti á ökrunum, af því þær þola ekki að ganga. Alls telst svo til, að það séu 70 miljónir kvenna í fvfna, sem verða fyrir þessari limlestingu fótanna, Þegar kínverska stúlkan er sloppin við kvalirnar frá hendi móður- innar, og hefir fengið visna leggi upp að hnjám og fjögurra þumlunga langa sparifætur, — þá er hún fengin í hendur unnusta sínum, sem aldrei hefur séð hana áður. Með perlusettri blæju fyrir andlitinu stígur hún út úr brúðar-burðarstólnum, til þess að »innganga« í hið heilaga hjónaband; en það er kallað á kínversku rósamáli: »hin unaðsríka undirokun«. í raun og veru eru umskiftin aðeins þau, að hún flytur frá fanga- vist heimilisins til fangelsis hjá annarri fjölskyldu, þar sem fyrir henni liggur að eyða næsta hálfum mannsaldri, sumpart í árlegum barn- eignum og sumpart sem vinnuhjú tengdamóður sinnar. Hún kemur ekki út fyrir hússins dyr, og má ekki skifta orðum við neinn karl-

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.