Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 19

Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 19
‘9 feir sem lágt í kirkju krjúpa, Krists á blóði þykjast súpa, til að gera hjartað hreint, föllnum hel þó bróður búa, — beinlínis að guði ljúga; hræsna þannig ljóst og leynt. Hví ei reyna bróður bæta, blindar fýsnir upp að ræta, vísa rétta veginn á? Enginn mun svo fjandskap - fyltur, forhertur og eðlisspiltur, fræ til góðs ei finnist hjá. Sakamanns í sálardjúpi, sektar undir klakahjúpi, leifð mun einhver lífstaug hlý. Samhygðar ef sólskins nyti, svellið innra bráðna hlyti, gróður þar svo greri á ný. Framþróunar fjölvits andi! fólkið leystu úr vanans bandi, fáræðis svo forðist slys. Leyfðu ei niðjum nýrri alda níðingsverkum áfram halda, rækt í nafni réttlætis. FORSKABÍTUR. Helga-erfi. Meðan uppi er eikin há, ilt er vöxt að greina, niðr’í holti heiglu-strá hæðarmörkum leyna. „Biðk þik, Sváfa, bríiðr grátattu, ef vill minu máli Júýða, at þú Heðni hvílu gervir, ok jöfr ungan ástum leiðir Helga kviða Hjörvarðssonar. Hvar sem Helgi heitinn fór, hyggjum þó að finnum: Eftir situr svipur stór samt í flestra minnum. Verða um stórleik merkis-manns misgár ýmiskonar. Svo fór það um haginn hans Helga Stefánssonar. I Sönnu næst, að sjálfir við sæjum, hvað hann gilti, þegar autt varð öndvegið okkar, sem hann fylti. Héraðs-flokk til fremdar var — flestum almenningi fremra og hærra höfuð bar hann, á hverju þingi. Engan hóf á efstu skör yfirborðið glæsta. Varpar tign á kotungs-kjör konungs-lundin stærsta. 2'

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.