Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 7
7
gjafir milli hjóna séu gildar. Pó eru smágjaíir undanþegnar
kaupmála, og ennfremur kaup á framfærslustyrk til handa konu
af hendi bónda eftir hans dag. Slík kaup af hendi húsfreyju til
handa bónda mundu aftur á móti vera ógild. Sá munur stafar
af því, að enn er talið eðlilegra, að bóndi framfærí konu sína en
hún hann.
Hafi bóndi rýrt félagsbúið mjög án gildra ástæðna eða sýnt
sig líklegan til að misbeita einkaumráðum sínum, þá getur hús-
f r e y j a skorað á yíirvald þeirra hjóna, að slíta félagsbúinu.
Fallist ’yfirvaidið á kröfuna, er búinu skift og hvort hjóna um sig
fær þá sinn búshelming til frjálsra umráða, hafi það aldur til. En
húsfreyja á heimtingu á búslitum, verði bóndi hennar gjaldþrota
í lifandi lífi. í því falli getur yfirvald ekki neitað búslitum. Og
hvort hjóna um sig á heimtingu á búslitum, yfirgefi annað hitt
án lögmætra orsaka. Búslitin hafa ekki frekari áhrif á hjóna-
bandið en að slíta fjárfélagi hjóna. Hjónabandið stendur óhaggað
að öðru leyti. Pessi búslitaheimild er nokkur réttarbót, þótt lítt
notuð muni vera ennþá, enda ekki nema 15 ára gömul. Áður
var ekki önnur leið til búslita en hjónaskilnaður, annaðhvort til
fulls eða þá a. m. k. að borði og sæng.
Séreign er yfirleitt í umráðum sér eiganda, jafnt hús-
freyju sem bónda.
Pó getur þriðjimaður, er gefur öðruhvoru hjóna gjöf eða
arfleiðir annaðhvort, jafnframt ákveðið, að gjöfin eða erfðaféð
skuli vera undir umráðum annars en eiganda. Svo mundi t. d.
faðir geta kveðið á, treysti hann hvorki dóttur né tengdasyni til
að fara með fé.
Pá má og og gjöra afbrigði á reglunni um umráð séreiganda
yfir séreign með k a u p m á 1 a, þó eðlilega því að eins, að hvorki
standi í móti lögleg ákvæði þriðja manns né fastmæli laga. Pannig
má ákveða, að séreign húsfreyju samkvæmt kaupmála, gjörðum
fyrir hjónavígslu, skuli ekki vera í umráðum hennar, eða að sér-
eign, er húsfreyju hefir hlotnast upp úr sameign beggja, skuli
vera undanþegin umráðum hennar. Hinsvegar væri ekki löglegt
að kveða svo á, að ö 11 séreign annars skyldi vera í e i n k a-
umráðum hins. Hitt má aftur á móti ákveða, að húsfreyja megi
ekki, þótt fjárráð sé, ráða séreign sinni nema með samþykki