Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 12
12
erfðarétt móts við hjónabandsbarn, láti hann skilgetið barn eftir
sig jafnframt óskilgetnu. Aftur á móti erfir óskilfenginn faðir og
föðurfrændur óskilgetið en þinglýst barn að ö 11 u leyti, sem skil-
getið hefði verið. Og kemur þar fram ekki ósvipað misrétti og
milli hórkonu og svokallaðs hórbarns.
Loks má fá konungsleyfi til skilgerðar*) annarra óskil-
getinna barna en hórbarna. Af þeim er skömm foreldranna og
óverðskuldaður eiginn skaði óafmáanlegur með öllu öðru móti en
eftirfarandi hjónabandi foreldranna og þau mega ekki giftast án
sérstaks leyfis. I Danmörku, þar sem búið er við sömu lög og
hér á landi í þessum efnum, er þó upp á síðkastið farið að veita
konungsleyfi til skilgerðar hórbörnum, og ætti að mega vænta
sömu linkindar þeim til handa hér.
Þess er þegar getið, að karlmaður sé skyldur til að gefa
með barni sínu óskilgetnu, en vitanlega því að eins, að telja rrfegi
hann föður barnsins. Líklega er barnsmóðirin ein bær um að
stofna til feðrunar barnsins. Vilji hún það ekki, þá geta senni-
lega hvorki aðrir aðstandendur barnsins né sveit móðurinnar gjört
það, en þetta verður þó sjaldan að baga, enda þarf venjulega
ekki að ýta undir barnsmæður að lýsa einhvern föður. Pað mun
ennþá þykja fremur vansi en hitt, að geta ekki feðrað, enda
greiðir löggjöf vor mjög götu mæðra í því efni, gagnstætt því
sem enn á sér stað sumstaðar. Á Frakklandi hefir t. d. til
skamms tíma verið beinlínis lögbannað að grenslast «ftir faðerni ó-
skilgetinna barna, og enn er það jafnvel því að eins leyft þar,
að vafi þyki ekki leika á um faðernið. Að vorum lögum þarf
óskilfengin móðir aftur á móti ekki annað en að snúa sér til yfir-
valds síns, og er það þá skylt til að gangast fyrir málshöfðun
gegn karlmanni þeim, er hún hefir lýst barnsföður sinn. Gangist
karlmaðurinn við faðerninu, fellur alt í ljúfa löð, en gjöri hann
það ekki, á hann ekki undankomu vænt, nema hann treysti sér til
að sverja sig »hreinan< af kvennmanninum. Gjöri hann það, verður
hann laus allra mála. ?ó getur staðið svo á, að hann fái ekki
eið, þótt vilji, og fær kvennmaðurinn þá að jafnaði að staðfesta
faðernislýsingu sína með eiði.
Hafi karlmaðurinn annaðhvort ekki unnið eiðinn eða hafi
') Svo þýði ég „legitimation“.