Eimreiðin - 01.01.1917, Síða 47
47
málar optnefndra persóna, Andrjesar og Oddhildar, millum eru þessir:
að þap leggi með sjer helminga-fjárlag á fengnu og ófengnu fje,
föstu og lausu, að undanteknum þeim í nefndu Skriðnessenni,
sem börnum eiga tilheyra, en eru hans óðalseign, ef við lífserfingja
er að skipta og deyr hún fyrri; en burtkallist velnefnd Oddhildur
fyrri en þeim verði barna auðið, þá hafi hennar erfingjar ei tilkall til
meira í Andijesar garð en loC^, hver hennar elskul. faðir lofar að
gefa henni á giptingardegi. Item lifi hún barnlaus honum lengur, þá
uppber hún fyrnefndan helming. Einnig behaldi það hjónanna, sem
lengur lifir skikkanlegri hjónasængur og morgungáfu reikningslaust.
Hjer uppá höfðu hlutaðeigendur fullkomin jáyrði og handsöl. Full-
gjörðist svo heilög trúlofun optnefndra heiðurs-persóna, Andrjesar og
Oddhildar, á millum, eptir kirkjulaganna hljóðan, fyrir yfirsögn, bæn og
blessan prestsins sr. Jóns Sveinssonar, sem í forföllum æruverðugs
sóknarprestsins sr. Eyólfs Sturlusonar þetta var af honum beðinn að
gjöra. Og skeði þetta í tilkvaddra dánumanna viðurvist, hverjir ásamt
hlutaðeigendum sín nöfn undirskrifa á sama stað, ári og degi, sem
fyrr greinir.
Sem hlutaðeigendur undirskrifa:
Ólafur tlallsson. Þórbur Ólafsson.
Andrjes Sigmundsson. Óddhildur Þóriardóttir.
Sem kaupvottar undirskrifa:
Magnús Bergsson. Halldór Brandsson. Jón Kráksson.
Gubmundur Mikaelsson. Guimundur Halldórsson.
Anno 17 7 5 þann 7da október, að Óspakseyri, að afstöðnum 3ur
lýsingum, millum þeirra velnefndu persóna, Andrjesar Sigmundssonar
og Oddhildar f’órðardóttur. og engum hindrunum neinsvegar auglýstum,
voru þau samanvígð til heilags egtaskapar af þeirra sóknarpresti, sr.
Eyólfi Sturlusyni, með venjulegum Ceremoníis eptir kirkjulögunum,
hverju til staðfestu eru vor undirskrifuð nöfn, sama stað, árs og dags
sem fyr greinir.
Jón Guómundsson. Magnús Bergsson.«.
Fyrri kona Andrésar var Ragnhildur dóttir Jóns Jónssonar í
Skáleyjum og Ásnýjar Sveinsdóttur úr Rauðseyjum, Oddssonar á
Hnúki, Gunnlaugssonar í Villingadal (Eggert skáld Ólafsson var
5. maður frá Gunnlaugi í Villingadal). Andrés og Oddhildur hafa
auðgast mikið þau 15 ár rúm, er þau bjuggu saman, því hann
dó 16. júní 1801 (sjá Eimr. XX, 181), og voru þau þá stórauðug
eftir íslenzkum mælikvarða. Sterbúið var metið á 2543 rd. 72
sk. (kr. 5087,50), sem er mikið fé, þegar þess er gætt, hvað
peningar giltu þá mikið, t. d. ung kýr 4 rd. 48 sk. (9 kr.), fram-
gengin ær að vorinu um 1 rd. (2 kr.), góðar 20 hundraðá jarðir