Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1917, Qupperneq 54

Eimreiðin - 01.01.1917, Qupperneq 54
54 Gekk hún suður leitið; geislinn fyrsti skein, bjartar daggir hrundu af burkna og grein. Heitar daggir hrundu um hennar fögru kinn. Kvatt hafði hún móður og kyst hann fÖður sinn. Eitt sinn leit hún aftur ofan í dal; sólskinsúða blámóða bæinn hennar fal. Skuggasælt og niðandi skógarhafið lá; þangað stefndi Signý með söknuð og þrá. Þegar flögðin hafa með töfrum sínum breytt hellinum í » höll með bogum og súlum ljósum* og »Fála er orðin fögur mær«, er situr »í friðsælum æskudraumi* hjá beði kóngssonar, er því þannig lýst, hvað Hlini sér, er hann vaknar: Hann lítur blæjur um ljósan barm og lokka, sem náttskugga, vefjast; á gullið skín við hinn unga arm, sem öldurnar brjóstin hefjast. Nú horfir hann inn í augans geim — þá er sem hann hrökkvi af dvala; hann kennir þá töfra og trylling í þeim, sem tröllin í hömrunum ala. Hún lyftir upp armi og augað skín, sem eldur, er djúpt er falinn; svanir hvítir sem ljósasta lín, , þá líða í hallarsalinn; þeir láta fallast á heiðan hyl und hreimsælum marmaraboga, og sönghljómar berast bjarghimins til, þar blikandi gullstjörnur loga. Það er svo margt fleira fallegt í þessum ljóðum, sem mann langaði til að tilfæra, en þessi sýnishorn verða að nægja, því rúmið leyfir ekki meira. Hinn ytri búningur er allviðunandi og prentvillur fremur fáar. f>ó eru þær til, t. d. »ástfanginn« (bls. 21) f. ástfangin, »hininsins« (37) f. himinsins, »ylmi» (41) f. ilmi, »hyllir« (76) f. hillir, og líklega »vaknar« (62) f. raknar (»sá harmur upp í huga raknar«, rímað á móti . . ,»Hlini hljóður vaknar«). V G. SELMA LAGERLÖF: JERÚSALEM II. f>ýtt hefir Bjórg Þ. Bl'óndal. Rvík 1916. Um fyrra bindið af þessari bók var getið í Eimr. XXII, 231, og fanst oss mikið til um það. En ekki er snildin minni í þessu bindinu, þar sem sagt er frá Jórsalaferð Svíanna og lifnaðarháttum þeirra í Jerúsalem, og er frásögnin jafnframt látlaus kvikmyndasýning af öllum þeim stöðum í Jerúsalem og umhverfi hennar, sem menn kannast við út Biblíunni. En hér fá menn meira en nöfnin tóm; hér er brugðið upp svo lifandi myndum af stöðunum, að lesandanum finst hann verða beinlínis kunnugur á þessum slóðum. Og þó eru allar þessar lýsingar svo aðdáanlega ofnar inn í »spennandi« sögu, að aldrei koma fyrir neinir bláþræðir, hvað þá heldur að söguþráðurinn nokkurstaðar slitni. Bókin er fullkomið listaverk. Þýðingin á bókinni er líka fyrirtak og málið svo gott, að leitun er þar á nokkrum blettum. f>ó þætti oss náttúrlegra í sögu að segja; að borða sig sadda, en að »éta sig metta« (bls. 216), og silkidúkar betra en »silkitau« (101). Finna má og einstöku miður réttar orð- myndir, eins og t. d. »þerum« (100) f. berjum, »hver« (243) f. hvor,

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.