Eimreiðin - 01.09.1920, Blaðsíða 6
262
JÓN BISKUP VÍDALÍN
[EIMREIÐIM
þegar hann þarf að finna dæmi máli sínu til stuðnings.
Þá sést skýrt, að það er ekki tilviljunin ein, sem lætur
honum íljúga í hug eitthvert og eitthvert ritningarorð,
heldur beinn kunnugleiki. Það er jafnan fyrir að vita,
hvert hann leitar að dæmum sínum. það er stök undan-
tekning, ef hann víkur út fyrir biblíuna, en þaðan koma
líka þegar í stað fylkingarnar reiðubúnar, frá elstu tímum
og yngstu. »það verði mér ekki«, segir hann í prédikun
á 3. s.d. e. páska, »að eg hrósi mér af nokkrum hlut,
nema af krossi Drottins vors Jesú Krists, segir st. Páll,
Gal. 6; aðrir hrósa sér af auðlegð sinni og nægtum, eins
og hinn ríki dári, Lúk. 12; nokkrir af metorðum sínum,
eins og Nebúkadnesar, Dan. 4; sumir af afli og karl-
mensku, eins og Golíat, 1. Sam. 17; Heródes af sinni
málsnilli, Post.gb. 12, og gaf eigi Guði dýrðina; Pílatus
af makt sinni, Jóh. 19, er hann þóttist hafa vald til að
krossfesta Jesúm og að láta hann lausan; hinir af stórum
ættum eins og Gyðingar, er sögðust hafa Abraham fyrir
föður, Jóh. 8; . . . hinn óguðlegi Lamech hrósaði sér af
fólskunni fyrir kvinnum sínum, Gen. 4, og eru honum
allir þeir líkir, er stæra sig af ódygðunum; þá hefir And-
skotinn sýnt sitt meistarastykki í hjarta syndarans, þegar
hann fyrst kemur honum til að drýgja glæpinn, og síðan
að láta sér vænt um hann þykja« o. s. frv. Eða dæmin
upp á það, hvernig ágirndin flekar menn, í prédikun á
1. s.d. í föstu, út af því, að Satan býður frelsaranum öll
riki veraldarinnar og þeirra dýrð. »Er það mála sannast«,
segir Vídalín, »að margur hefir lotið Andskotanum fyrir
minna; minna var það, sem Balam vann til þess, að
hann vildi formæla ísrael, Núm. 22; minni var gulltungan
og kápan og þeir tvö hundruð siklar silfurs, sem Achan
misti lífið fyrir, Jós. 7; eigi var Nabots víngarður svo
mikils virði, sem Achab tapaði fyrir lífinu, ríkinu og allri
sinni velferð, 1. Kong. 21; eigi var hátíðaklæðnaðucinn
og þau tvö hundruð centener silfurs, sem Gezi laug út af
Naman hinum sýrlenska, 2. Kong. 5, mikið að reikna
hjá þessu, og hvað voru þeir 30 silfurpeningar, sem Júdas
keypti, Matt. 27, fyrir skapara himins og jarðar?« —