Eimreiðin - 01.09.1920, Side 76
332
[EIMREIÐIfT
J. C. Poestion.
Margir íslendingar hafa eflaust minst Poestions í huga^
er neyðarópin frá Vínarborg bárust alla leið til íslands.
Ymsum var það áhyggjuefni, hversu íslandsvinum í ófrið-
arlöndunum liði, en meðal þeirra má telja Poestion hirð-
ráð í Vínarborg meðal hinna allra fremstu. Poestion er
nokkurs konar brautryðjandi tslandsvinanna svo nefndu
og tslendingar mega vera honum þakklátir fyrir það, að
hann hefir einkum fengist við nýíslenskar bókmentir og
samið mörg merkileg rit um þær. Norrænufræðingar við
þýska háskóla og vísindamenn í germönskum fræðum
hafa lagt mikla alúð við ýms fornrit vor, þýtt fjölda af
fslendingasögum og Eddukvæðum á þýsku og gelið út
ýms þessara rita á frummálinu með ágætum skýringum
(»Thule«-safnið í Jena og »Saga-Bibliothek« í Halle); eru
þær útgáfur mikiu betri en íslendingasögur Sigurðar Krist-
jánssonar og væri æskilegt, að vér Islendingar ættum eins
góðar útgáfur. Nýíslenskar bókmentir hafa fram til síð-
ustu tima verið litils virtar af öðrum þjóðum; kunnugt
er, að Islendingur einn gat ekki fyrir 20—30 árum fengið
að taka próf við Kaupmannahafnarháskóla i norrænum
fræðum, af því að hann vildi velja sér aðalviðfangsefni
úr nýíslenskum bókmentum, en kennarinn vildi ekki
kannast við, að þær væru nokkurs virði. Saga nýíslenskra
bókmenta hefir og enn ekki verið rituð, en góðan stuðn-
ing veita þeim, er hana ritar, rannsóknir Poestions um
leikritaskáldskap íslenskan (Zur Geschichte des islán-
dischen Dramas und Theaterwesens) og rit hans um ný-
íslenskan skáldskap (»Islándische Dichter der Neuzeit« og
»Eislandbluten«).
Hefir hann þýtt á þýska tungu fjölda af bestu ljóðum
vorum og hlotið einróma lof þýskra og íslenskra ritdómara
fyrir. Þá hefir hann og þýtt úr íslensku: Sögu Friðþjófs
hins frækna, frásögnina um Tyrfing, sverð Angantýs, ís-
lenskar þjóðsögur, Pilt og stúlku Jóns Thoroddsen (6. út-