Eimreiðin - 01.09.1920, Side 78
334
J. C. POESTION
[EIMREIÐIM
íslenskri orðabók í tugi ára. Auk þessara rita um ísland
hefir hann samið fjölda annara rita, t. d. um grískar
skáldkonur, samið kenslubækur á þýsku í forníslensku,
dönsku, norsku og sænsku1), enda hefir hann hlotið
margskonar viðurkenningu fyrir. Hann hefir verið sæmdur
ýmsum heiðursmerkjum, nýlega m. a. kommandörkrossi
2. fl. sænsku Wasaorðunnar og gerður að heiðursdoktor
við háskólann í Graz fyrir 3 árum. í ávarpsskjali háskól-
ans, er honum var sent, var honum þakkað fyrir vísinda-
afrek sín, og flest austurrísk blöð, er mintust á útnefning
þessa, gátu um leið helstu íslandsrita hans og mintust
þess, að hann væri sá, er opnað hefði augu þýskumæl-
andi þjóða fyrir fegurð og auðlegð nýíslenskra bókmenta.
Þekkingu hans á Norðurlandatungum er og viðbrugðið
og benti háskólinn í Berlín á hann fyrir nokkrum árum
i bókmentadeilu einni og sagði um hann, að hann væri
einasti sérfræðingur í Norðurlandamálum á öllu megin-
landinu (»die einzige Autoritát auf dem Gebiete der nor-
dischen Sprachen auf dem ganzen Kontinent«). Poestion
er nú 67 ára gamall (f. 7. júní 1853) og átti samkvæmt
nýsettum lögum Austurríkis að víkja úr embætti og fara
á ettirlaun, er hann var orðinn 65 ára, en stjórnin hefir
ekki séð sér fært að missa hann á meðan á flutning ríkis-
bókasafnsins í Vínarborg stendur. Lengstan hluta æfinnar
hefir hann verið bókavörður eða frá 1886, að hann varð
eftirmaður Konst. v. Wurzbachs, er var forstöðumaður
bókasafns innanríkisráðuneytisins og frægur rithöfundur.
Poestion er einnig sérfræðingur í öllu, er að bókavarðar-
störfum lýtur, og hefir mörg ár fengist við að semja stóra
handbók fyrir bókaverði.
1906 var Poestion boðið hingað til lands, og ritaði hann
þá ferðabók allmikla, er því miður mun ekki enn vera
komin út. Minnist hann enn dvalar sinnar hér á íslandi
og segir, að hún verði sér ógleymanleg.
Pegar Poestion lýkur störfum sínum á bókasafninu kl.
4 á degi hverjum, fer hann að fást við íslandsfræði sín;
1) Sbr. Birkibeina 1913, bls. 42—44.