Eimreiðin - 01.09.1920, Side 122
378
RITSJÁ
[EIMREIÐIN
Nokkrar útlendar merkis-bækur.
Bókaforlagið H. Aschehoug & Co., sern telja má eitt helsta
bókaforlag á Norðurlöndum og hefir bækistöð í Kristjaniu og
Kaupmannahöfn, hefir sent Eimreiðinni til umsagnar nokkrar
merkar bækur, er það hefir gefið út. Og með því að Eimreiðin
þykist vita, að bækur með þessu sniði muni tæplega koma út á
íslensku i bráð, en á hinn bóginn fjöldi manna hér, sem getur
haft bókanna full not þótt á norsku (eða norsk—dönsku) sé, þá
vill hún benda mönnum á þær með nokkrum orðum, hverjaum
sig. Bækurnar er auðvelt að fá hér á landi í bókaverslun Ár-
sæls Árnasonar.
1. Kulturens Historie, i populær fremstilling ved norske for-
fattere, under redaktion av K. Visted. Bók þessi er i 3 allstórum
bindum og er efninu skift þannig, að 1. bindi er um »materiel
kultur«, 2. bindi »social kultur« og 3. bindi »aandelig kultur«.
Bað er ekki smáræðis fróðleikur, sem námfús maður getur
ausið úr þessari menningarsögu heimsins. Hér er hægt að rekja
ræturnar að þeirri menningu, sem vér nú lifum í, sjá hvernig
hún hefir æxlast lið fram af lið og hvernig svo að segja einn
ættboginn kemur fram af öðrum, en byltingar og hafrót sýnast
oft og einatt ætla að leggja alt í rúst. Hér er hægt að fá hand-
hæg og ljós svör við mörgum spurningum. Hvernig hafa atvinnu-
vegirnir þroskast frá frumstiginu til þess sem nú er? Hvernig
hefir verslun og viðskiftum verið hagað? Hvernig hafa búningar
manna verið og bústaðir? Hvernig er skriftin til orðin og hvern-
ig hefir hún þroskast? Eða þá tungumálið sjálft, eða skáldskap-
urinn eða trúarbrögðin eða vísindin? Og hvernig hefir stjórnar-
fyrirkomulagið verið frá fyrstu tímum, sem sagnir ná til, og
fram á vora daga? Alt þetta og tjölda margt fleira er rætt í þess-
ari bók, hver kafli af manni, sem sérstaklega hefir lagt stund á
þá grein, og er þetta nú lagt hér fram fyrir hvern þann, sem
hefir augu til að sjá með og langar til að vita eitthvað.
Bókin er með fjölda mynda og mjög vönduð að frágangi, og
afar-ódýr eftir stærð og frágangi. Kostar bókin ób. kr. 24,00.
2. Nordmœnd i det 19de aarhundrede, udgivet af Gerhard Gran
I.—III. bindi.
Nítjánda öldin er blómaöld hins nýja Noregs eftir doða og
lægingu næstu alda á undan. Pað er næstum þvi ótrúlegt, hvað
norska þjóðin hefir eignast af afburðamönnum á þessum tíma
og ekki furða þótt einmitt slikt verk sem þetta komi út hjá þeim.
Bókin er í 3 allstórum bindum og eru þar æfisögur allra
lielstu manna Noregs á 19. öldinni í hvaða grein sem er, stjórn-
málamenn, trúvakningamenn, skáld, listamenn o. s. frv., og alt
ritað af ágætum rithöfundum. Pað er heldur ekki svo að skilja,