Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1985, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1985, Side 27
DV. MÁNUDAGUR 28. OKTOBER1985. 27 spyrna unglinga — Knattspyrna ungiii r. iksí.r»"Œ Úbk', öhfcíwggSSj ÞrtSf'N^"??" ___________ /r.,t esk-’ ”all ---—--------——(DV-inymj HH.) FormaðurKSÍ fylgSstmeð i Unglingalandsliðið (U—18) æfir mjög stíft þessa dagana og sýna strákarnir auknar framfarir með hverri æfingunni og veitir sjálfsagt ekki af. Öhætt er því að vera bjart- sýnn fyrir þá tvo leiki sem fram- undan eru, þ.e. gegn Irum þann 11. nóv. nk. og Skotum 14. nóv. En far- ið verður út þann 9. nóv. Allt hefur verið gert til þess að undirbúningur Uðsins geti verið sem bestur og strákarnir hafa svo sannarlega ekki legið á liði sínu, mæting ávallt 100% og drengirnir lagt sig alla fram á æfingunum. Getan er fyrir hendi og vonandi ná strákarnir að sýna betri hUðina í leikjunum úti, þá getur allt gerst. Ellert B. Schram, formaður KSÍ, fylgdist af áhuga með æfingunni sunnudaginn 12. okt. sl. -HH. Þeirskoraekki markámeðan! c ÁRIÐ 1962 voru KR-ingar meö mjög gott lið í 1. deildinni. í leik gegn Val voru þeir í sérstökum ham og gekk allt upp hjá vestur- bœjarliðinu. í>eir skoruðu hvert markið á fætur öðru og þegar stutt var til hálfleiks var staðan orðin 4-0 KR í vil og áfram hélst pressan á Valsmarkið og útlitið dökkt fyrir Hlíðarendastrákana. í hvert sinn sem Árni Njálsson, varnarmaður hjá Val, komst í tæri við boltann dúndraði hann háum og löngum boltum fram völlinn. I einu upphlaupinu náði Árni að spyrna frá marki Vals - og þvílík spyrna — himinhátt og langt. Björgvin Hermannssyni, markverði Vals, sem hafði verið undir mjög mikilli pressu, þótti nóg um og hljóp fram í teiginn og æpti til sinna manna: „Hörm- ung er að sjá þetta, strákar. Hvernig væri að taka boltann niður og reyna að spila fót- bolta!!!“ - Þá svaraði Árni Njáls- son um hæl: ,,Þ»eir skora ekki mark meðan boltinn er í loft- inu!!!“ Fyrsta konan í heiminum í stjórn knattspy rnusambands! SVANFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR var kosin í stjóm Knattspyrnu- sambands íslands á síðasta KSÍ-þingi - og varð þvi fyrsta konan í heiminum til að takast á við slíkt starf. Svanfríður, hvað var það sem hvatti þig til að fara út í þetta? - I fjölskyldu minni er mikill áhugi á knattspyrnu og hlaut ég því að smitast af þessum áhuga. Maðurinn minn var bæði leikmað- ur og þjálfari i knattspyrnu og börnin mín, sem byrjuðu snemma að æfa og keppa, eru ennþá í knatt- spyrnunni. Við búum nálægt Vall- argerðisvelli í Kópavogi þar sem fer fram ótrúlegur fjöldi leikja í yngri flokkunum og höfum við ekki síður haft gaman af því að horfa á þá yngri en eldri. Eftir að ég fluttist í Kópavog 1970 kynntist ég líka kvennaknatt- spyrnunni og hef fylgst með henni síðan. Tók ég fljótlega að mér að vera liðsstjóri stúlknanna í Breiða- bliki og þegar kvennanefnd KSÍ var skipuð fyrir 5 árum var ég beðin að taka sæti í henni. Hef ég starfað i henni síðan. Vakti athygli áSpáni! Þú ert fyrsta konan sem situr í stjórn KSÍ. Er ekki erfitt með allt þetta karlalið í kringum sig, finnst þér þú vera einangruð? - Síðustu 10 árin hef ég sótt þing KSÍ sem fulltrúi Breiðabliks og kvennanefndar KSÍ. A síðasta árs- þingi var ég kjörin í varastjórn sambandsins og hefur mér fallið vel að vinna með óhugasömum og fórnfúsum stjórnarmönnum, sem hafa tekið mér mjög vel, og get ég ekki fundið að ég sé á nokkurn hátt einangruð. I september sl. fór ég sem einn af fararstjórum lands- liðs undir 21 árs til Spánar. Ég gat ekki fundið í þeirri ferð að strákun- um þætti neitt við það að athuga að kona væri í fararstjórninni og sjálf hafði égmjög gaman afþessari lærdómsríku ferð. En það vakti greinilega athygli Spánverjanna að kona væri í stjórn KSÍ. Ert þú ánægð með hlut kvenna í knattspyrnulegu til- liti? - Sumir segja að knattspyrna sé ekki fyrir konur en ég er á annarri skoðun. Hin mikla fjölgun þátttak- enda í kvennaknattspyrnu hér á landi og í öðrum Evrópulöndum sýnir líka að knattspyrnan á geysi- legum vinsældum að fagna hjá stúlkum sem piltum. Ef til vill má segja að hraðinn, tæknin og kraft- urinn sé ekki jafnmikill í kvenna- knattspymu og hann er hjá úrvals- liðum drengja en stúlkurnar okkar hafa sýnt miklar framfarir og náð verulega góðum leikjum, jafnvel á móti erlendum liðum. Þess má líka geta að nokkrar íslenskar stúlkur hafa leikið með góðum erlendum liðum og staðið sig vel. Eru einhver mál sem þú vilt setja framar öðrum? - Ég legg mikla áherslu á að góðir þjálfarar fáist til að sjá um þjálfun stúlknanna. Því er nauð- synlegt að halda fleiri námskeið fyrir þjálfara kvennaflokka. Til þess að efla kvennaknattspyrnuna þurfa stúlkurnar að fó skemmtileg og verðug verkefni og þarf því að leggja vinnu í að fá landsleiki o.fl. Þá þarf líka að vanda undirbúning og framkvæmd knattspyrnumóta fyrir stúlkurnar. Á ég þar við t.d. að þær fái að leika á grasi og að vel sé staðið að dómaramálum. Eitthvað sérstakt í lokin? - Knattspyrnan er af mörgum tajin ein skemmtilegasta íþrótta- grein sem þekkist og hrífur bæði karla og konur. Knattspyrnuna stunda fleiri unglingar en nokkra aðra íþróttagrein og er hún því mjög mikilvægur þáttur í uppeldi og líkamlegri þjálfun þessara ung- menna. Vil ég því hvetja alla for- eldra til þess að fylgjast með þess- Svanfríður Guðjónsdóttir: „Ég get ekki fundið að ég sé á nokk- urn liátt einangruð.“ um íþróttaiðkunum barna sinna, koma að horfa á leikina og taka sem virkastan þátt í þessu skemmtilega starfi með unga fólk- inu. Við tökum undir þessi lokaorð Svanfríðar og óskum henni vel- farnaðar í starfi. (Eiginmaður Svanfríðar er Reynir Karlsson, íþróttafulltrúi ríkisins.) -HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.