Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGÚR i. SEPTEMBER 1986.
Fréttir
Hótanir stjómvalda:
„Kannast ekki
við þetta“
- segir utanríkisráðherra
„Ég kannast ekki við að þetta hafi
verið gert. Hins vegar hef ég pressað
mjög á að þetta mál verði leyst,“ sagði
Matthías Á Mathiesen utanríkisráð-
herra er DV bar undir hann frétt
bandarískrar útvarpsstöðvar um gang
Rainbowmálsins. I þessari fiétt var
fúllyrt að íslensk stjómvöld hefðu
hótað að nota vamarsamninginn til
að knýja fram lausn í þessu máh; m.a.
hótað því að heimila ekki byggingar
ratsjárstöðva hér á landi.
„Það hefur alltaf verið skýrt af minni
hálfu að það eigi ekki að blanda örygg-
is- og vamarmálum saman við einstök
vandamál sem til lausnar kunna að
koma,“ sagði utanríkisráðherrann.
-APH
Mjólkuivörur
hækka í dag
í dag hækka mjólkurvörur um 3,2
til 3,5 prósent. Aðrar búvörur hækka
ekki.
Þessar hækkanir koma í kjölfar þess
að verðlagsgrundvöllur landbúnaðar-
vara hækkar um 2,86 prósent til
bráðabirgða fiá og með deginum í
dag. Nefnd, sem vinnur að endurskoð-
un grundvallarins, hefúr ekki lokið
störíúm og var þvi ákveðið að hækka
til bráðabirgða. Stefiit er að því að
nefndin ljúki störfum eigi síðar en 30.
september.
Af mjólkurvörum má nefiia að ný-
mjólk hækkar um 3,5 prósent, ostar
um 3,2 prósent. Hins vegar hækkar
smjör ekki. Nauta- og kindakjöt
hækkar ekki heldur. Búist er við að
útsala kindakjöts standi fram í miðjan
mánuðinn.
-APH
Mótorhjól
skall
á bíl
í Neskaupstað gerðist það síðastliðið
laugardagskvöld að mótorhjól skall á
bifreið með þeim afleiðingum að pilt-
urinn sem ók hjólinu kastaðist af því.
Hann var fluttur á sjúkrahúsið í Nes-
kaupstað en mun ekki hafa slasast
alvarlega svo vitað sé. Ökumaður bif-
reiðarinnar, sern ók í veg fyrir hjólið,
hlaut engin meiðsli.
-KB
Vextiraf
Verður
kasta
að koma til
dómstóla?
Flest bendir til þess að húskaup-
endur, sem greiða fasta vexti af
eftirstöðvalánum, verði að láta dóm-
stóla skera úr málum vilji þeir frekar
greiða þessa vexti með svokölluðum
verðbótaþætti. Sú vaxtameðferð gef-
ur jafnari greiðslubyrði en fastir
vextir.
í svari til Jóhönnu Sigurðardóttur,
þingmanns Alþýðuflokksins, hefur
Seðlabankinn staðfest að skuldari
eigi rétt á að krefjast að vöxtum sé
skipt í grunnvexti og verðbótaþátt.
Vitnað er í reglur Seðlabankans frá
1979. „Samkvæmt þessu teljum vér,
að skuldarinn eigi rétt á því og geti
krafist þess, að vöxtum sé skipt í
grunnvexti og verðbótaþátt vaxta í
þeim tilgangi að jafria geiðslubyrði
láns,“ segir í svari bankans.
„Ég tel að sá sem vill greiða af
eftirstöðvalánum samkvæmt reglum
Seðlabankans verði að láta á það
reyna fyrir dómstólum. Hann getur
látið reikna afborgunina samkvæmt
þeim og greitt þá upphæð. í kjölfarið
er ekki ólíklegt að upphafleg skuld
verði látin gjaldfalla og að hann
verði að halda uppi vömum fyrir
dómstólum," sagði Magnús Axels-
son fasteignasali í samtah við DV.
„Orðlaus áður en ég
hrópaði á hjálp‘ ‘
- segir 77 ára gömul kona sem var rænd
„Ég var á gangi í hábjörtu með
veskið mitt undir hendinni þegar ég
fann skyndilega að því var svipt af
mér og dökkklædd vera skaust í
burtu eins og eldibrandur fyrir næsta
hom. Ég stóð eftir orðlaus af undrun
í nokkurn tíma áður en ég gat hróp-
að á lögregluna. Það hefúr hreinlega
aldrei hvarflað að mér að þetta gæti
gerst,“ sagði Bjamey Jóhannsdóttir,
77 ára gömul kona sem varð fyrir
þeirri óþægilegu reynslu að vera
rænd veski með aleigu sixrni í þar
sem hún var á göngu eftir Kára-
stígnum í Reykjavík um kl. 19 á
fimmtudagskvöldið.
„Ræninginn var mjög ungur, varla
meira en 14-15 ára strákgrey, dökk-
Bjamey Jóhannsdóttir: >TÁtti ekki fyrir mjólkurpotti eftir rán'ið. Aleigan var í veskinu.“ DV-mynd S
klæddur og grannur sýndist mér, en
það var ekki viðlit að elta hann. Ég
stóð bara þarna og hrópaði „hringið
í lögregluna" þangað til hjón á bíl í
nágrenninu komu mér til hjálpar.
Þegar lögreglan kom keyrði ég hring
með henni um hverfið en þjófurinn
fannst ekki.
Mér var iUa bmgðið því í veskinu
var aleiga mín, um 4000 krónur í
reiðufé og bankabók með 20.500
króna innistæðu. Næsta morgun
komst ég að því að ég átti ekki einu
sinni fyrir mjólkurpotti. Ég fór því
eldsnemma niður í banka til að til-
kynna þjófiiað á bankabókinni en
vildi þó fá að taka út af henni fyrir
helstu helgamauðsynjum. En það
var ekki hægt heldur, þeir sögðu að
enginn gæti tekið út af henni við
þessar kringumstæður. Til allrar
lukku var verið að leggja inn ávísun
frá lífeyrissjóðnum mínum einmitt á
sama tíma svo hægt var að bjarga
mér um einhveija aura. En veskið
mitt, og allt sem í þvi var, fæ ég aldr-
ei bætt.
Verst er þó að uppgötva að ekki
er lengur óhætt að ganga úti á götu
um hábjartan dag og að ungt fólk
skuli þurfa að ráðast á vamarlaust
og gamalt fólk til að verða sér úti
um peninga. Maður hefur heyrt af
eldra fólki sem verður jafnvel fyrir
barsmíðum um leið og veskinu
þeirra er rænt. Það er hart að þurfa
að lenda í þvi sjálf áður en maður
trúir að þetta geti gerst.“
-BTH
Gígjukvisl rann öll undir brú sina um helgina, eins og Súla og Skeiðará. DV-mynd JH
Skeiðará
vex enn
Biýmar yfir Skeiðará, Gígju-
kvísl og Súlu á Skeiðarársandi
hafa allar staðist hlaupin í ánum,
enn sem komið er. Hlaupin í Súlu
og Gígjukvísl eru nú í rénun en
Skeiðará var í örum vexti í gær.
„Það er töluvert vatn í Skeiðará.
í gær var mesti vöxtur í henni
hingað til. Þetta er þó ennþá ákaf-
lega rólegt," sagði Ragnar Stefáns-
son, bóndi í Skaftafelli, í morgun.
Eyjólfur Hannesson, bóndi á
Núpsstað, hafði aðra sögu að segja
um Súlu og Gígjukvísl.
„Þetta er allt saman að minnka.“
-KMU