Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Sljóminál
Steingrím-
ur ekki
fram í
Reykjavík
Jén G. Haulcaacn, AkinByii;
„Ég mun ekki sækjast eftir fram-
boði í Reykjavík eða á Reykjanesi
í næstu kosningum," sagði Stein-
grímur Hermannsson á SUF-þing-
inu en Helgi Pétursson hafði
skorað á hann að gera slíkt.
Steingrímur sagðist fagna því
sérstaklega hve ungir framsóknar-
menn ætluðu að taka fast á
umhverfismálum.
„Mér fannst erindi Magnúsar
Bjamfreðssonar á þinginu mjög
athyglisvert og er sammála honum
í því að allt of margir líta svo á
að framsóknarmenn séu varð-
hundar kerfisins."
Steingrímur sagði ennfremur 'í
erindu sínu að það ylli honum
áhyggjum hve samvinnuhreyfing-
in hefði komið illa út í könnun
félagsvísindadeildar.
Ungt fólk í
öragg sæti
J<5n G. Haukascn, Akureyiú
„Ég er mjög ánægður með þing-
ið. Það stóð undir þeim vonum sem
við gerðum okkur,“ sagði Gissur
Pétursson, nýkjörinn formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna. Hann tekur við af Finni
Ingólfesyni.
Gissur Pétursson sagði að það
væri gott veganesti fyrir flokkinn
að í könnun Félagsvísindadeildar
Hí hefðu 70% spurðra verið fylgj-
andi byggðastefhu og jöfhun
búsetu um allt land.
„Ég tel meginmarkmiðið að
gölga þingsætum og á þessu þingi
kemur greinilega fram að ungt fólk
ætlar að beijast fyrir öruggum
sætum á framboðslistum flokksins.
Ég er ekki að tala um að skipta
um þingflokk eins og haft hefur
verið eftir kollegum mínum í fjöl-
miðlum, nema þá að hluta til.“
Frá þingi Sambands ungra framsóknarmanna í Hrafnagilsskóla i Eyjafirói um helgina. Á þinginu kom fram mjög
ákveðin krafa um aö ungt fólk skipaði örugg sæti á framboðslistum flokksins í næstu kosningum. DV-mynd JGH
Sambandsþing ungra fvamsóknaimanna:
Hið fjölmennasta
í tuttugu ár
Jón G. Hauksscn, Akuieyii
Þing Sambands ungra framsóknar-
manna, sem haldið var á Hrafnagili í
Eyjafirði um helgina, var fjölmennasta
þing sambandsins sem haldið hefur
verið síðastliðin tuttugu ár. Þingið
sóttu 140 manns.
Miklar umræður voru um að flokk-
urinn skyldi verða umhverfisflokkur.
Fram kom að hann ætti að vera harð-
asti umhverfisflokkur á íslandi og þótt
víðar væri leitað. Nokkrar umræður
voru einnig um að yngja þyrfti upp í
flokknum en nokkur gagruýni var þó
á það sem Þórður Yngvi Guðmunds-
son lét hafa eftir sér í DV að skipta
þyrfti nánast algerlega um þingflokk.
Þingmennimir Haraldur Ólafeson
og Páll Pétursson gagmýndu að könn-
un félagsvísindadeildar skyldi hafa
verið afhent fjölmiðlum til birtingar.
Haraldur sagði að könnunin væri fyrst
og fremst vinnuplagg og að hann teldi
skaðlegt að láta hana alla í henduma
á andstæðingum.
„Framsókn vingsast
til að henta öllum“
Jón G. Hauksacn, Akureyii:
„Framsóknarflokkurinn stefnir á
núllið á Reykjavíkursvæðinu og verð-
ur aftur dæmigerður dreifbýlisflokk-
ur,“ sagði Magnús Bjamfreðsson á
þingi Sambands ungra framsóknar-
manna á fostudagskvöld.
Erindi Magnúsar vakti mikla ab
hygli á þinginu. Magnús sagði að það
væri slæmt hve margir teldu að flokk-
urinn væri hentistefiiuflokkur og taldi
erfitt fyrir fólk að átta sig á því hvar
hann stæði í stjómmálum.
„Flokkurinn hefur starfað með öU-
um flokkum og að mínu mati hefur
hann meira eða minna vingsast til að
henta öllum. Það er það versta og vit-
lausasta sem flokkinn hefur hent.“
Magnús sagði að það væri áberandi
hve hinn almenni þingmaður Fram-
sóknarflokksins dytti niður í starfi á
milli kosninga. „Þingmennimir verða
að dusta af sér rykið og verða þekktir
í augum almennings fyrir jákvæð störf.
Þeir eiga að reyna að ráða meiru um
umræðuna í fjölmiðlum í stað þess að
vera á sífeUdum flótta. Framsóknar-
menn hafa orð á sér fyrir að vera
vemdarar kerfisins á meðan sjálfetæð-
ismenn hafa orð á sér fyrir að vilja
breyta kerfinu. Þetta er mjög slæmt
fyrir flokkinn."
Magnús sagði að lokum í ræðu sinni
að Framsóknarflokkurinn yrði að gera
það upp við sig strax hvort hann ætl-
aði að vera dreifbýlisflokkur eða ekki.
Finniir
tfltlgli l&W Iftf
ænar ao
Jón G. Haoiksaon, Akureyrú
Finnur Ingólfeson, aðstoðarmað-
ur sjávarútvegsráðherra og fráfar-
andi formaður SUF, ætlar að
beijast fyrir ömggu sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík
í næstu kosningum. Þessu lýsti
hann yfir á SUF-þinginu um helg-
ina.
Þetta er fyrsta yfirlýsing ungs
framsóknarmanns um að hann
ætli að beijast fyrir ömggu sæti
en talið er að fleiri ungir firamsókn-
armenn muni gefa svipaðar yfirlýs-
ingar á næstunni.
Helgi P.
vill
Steingnm
Jón G. Haukssan, Akureyii;
„Ég tel nauðsynlegt að skoða
framboðsmáls flokksins í þéttbýli
sérstaklega fyrir næstu kosningar
og beita þeim tækjum sem em
öflugust. Ég tel lífenauðsynlegt
fyrir flokkinn að Steingrímur Her-
mannsson og Halldór Ásgrímsson
fari í ftamboð í Reykjavík í næstu
kosningum og geri það reyndar að
tillögu minni hér,“ sagði Helgi
Pétursson, blaðafulltrúi Sam-
bandsins, á SUF-þinginu á fóstu-
dagskvöld.
Helgi skrifaði nýlega grein í blað
ungra framsóknarmanna um að
flokknum hefði verið refeað fyrir
að gera vel.
í dag mælir Dagfari
Þeir eni enn í felum
Á síðustu árum hefur það orðið æ
algengara að ýmsir þjóðfélagshópar,
sem hafa talið sig afekipta á einn eða
annan hátt, hafa látið meira að sér
kveða. Oft em þetta hópar fólks sem
hafa átt við að stríða vandamál sem
litin em homauga af þorra fólks.
Ætli alkamir hafi ekki verið einna
fyrstir til þess að koma fram, mynda
þrýstihóp og krefjast þess að
drykkjuvandamál yrðu rædd opin-
berlega. Síðan hefiir kynvillt fólk,
sem vill raunar láta kalla sig homma
og lesbíur, komið æ meira fram á
sjónarsviðið. Þetta er kallað að
koma úr felum, vera sýnilegur.
Nú hefur blaðafulltrúi SÍS krafist
þess að þingmenn Framsóknar-
flokksins komi úr felum og láti vita
að þeir séu til. Það hlaut svo sem
að koma að þessu. Margir hafa haft
nokkra hugmynd um tilvist flokks-
ins en mynd hans og stefiiur æ meira
horfið út í þokuna með síminnkandi
kjósendahópi. En með auknum
skilningi þjóðarinnar á málefhum
vandamálahópa þykir víst kominn
tími til að forsvarsmenn í Framsókn-
arflokknum sýni sig og láti í sér
heyra í trausti þess að þeim verði
sýnt umburðarlyndi. Helgi er greini-
lega viss um að fair viti um skoðanir
þingmanna og ráðherra flokksins á
þjóðmálum, hafi þeir þá einhveija
skoðanir. Um þetta kunna þó að
vera deildar meiningar. Einhvem
tímann var það sem Ólafur Ragnar
Grímsson lét hafa eftir sér í þá veru
að „blaðrið" í Stéingrími væri að
verða þjóðarvandamál. En Ólafiir
Ragnar tekur nú svo stórt upp í sig
og auðvitað er „blaðrið" í Steingrími
ekkert vandamál út af fyrir sig. Það
er ekki fyrr en kemur að fram-
kvæmdunum sem ástæða er til að
óttast. En það er rétt hjá Helga,
aðrir Framsóknarráðherrar em
næsta þöglir svo ekki sé talað um
þingmennina. Helst að Páll á Höllu-
stöðum missi eitthvað út úr sér af
og til.
Kannski að þeir óttist að dagar
flokksins verði taldir fari þeir að,
hafa skoðanir á málum og láti þær
í ljósi. Enda ekki allir sem hafa þá
einlægni til að bera sem blaðafidl-
trúi SÍS segir að ríki í fari Stein-
gríms. Allt þetta hlýtur að verða
tekið til mjög ítarlegrar umflöllunar
í æðstu valdastofhunum Framsókn-
arflokksins - bak við tjöldin að
sjálfeögðu. Ef tekin verður sú ör-
lagaríka ákvörðun að framsóknar-
mönnum beri að hafa skoðun og láta
hana í ljósi þarf margt að koma til
áður en hægt verður að hrinda mál-
inu í framkvæmd. Það þarf að fá
hæfa menn úr herbúðum Sambands-
ins til að kenna þetta á kvöldnám-
skeiðum og hugsanlega gegnum
bréfaskóla. Það er ekki hægt að
ætlast til þess að menn geti allt í
einu rokið til og farið að „komment-
era“ á hitt og þetta sem upp kemur
í þjóðfélaginu, jafnvel þótt þeir séu
þingmenn eða ráðherrar. Það þarf
að segja mönnum hvaða skoðun þeir
eigi að hafa á hveiju máli og hvem-
ig þeir eigi að láta hana uppi í ræðu
og riti. Annars er hætt við að allt
fari í handaskolum og tóma vitleysu.
Það er ekkert sem segir að tekið sé
fagnandi á móti hveijum einasta
feluhópi hérlendis sem vill koma
fram og verða sýnilegur. Á þessu
máli em ekki bara tvær hliðar held-
ur margar eins og oft er með mál sem
eru þess eðlis að líkja mætti við
sólskinsburð Bakkabræðra. Við
skulum bara vona að framsóknar-
menn verði ekki fyrir umtalsverðu
aðkasti þótt þeir fari kannski að láta
á sér kræla. Þetta er ábyggilega
nógu erfitt líf fyrir þá þótt ekki verði
farið að gera að þeim hróp. Svo er
þetta viðkvæmt mál fyrir SÍS þótt
ekki hafi blaðafulltrúi þess fjallað
um það í grein sinni þá er hann skor-
aði á framsóknarmenn að verða
sýnilegir. Á til dæmis að gera tengsl-
in milli flokksins og fyrirtækisins
sýnilegri en nú er? Þetta er ein af
þeim spumingum sem Helgi Péturs-
son verður að hafa milligöngu um
að svara.
Dagfari.