Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Síða 5
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
5
Fréttir
Ávísanaþjófar
fagna bankakortum
Bankakortin hafa gert ávísanaþjóf-
um lífið létt. Að sögn lögreglumanna
færist það mjög í vöxt að bankakortum
sé stolið og þar með tryggi þjófamir
vandræðalítil skipti á ávísunum úr
stolnum tékkheftum. Eftir að búið er
að stela bankakorti þarf aðeins að
verða sér úti um ávísanahefti frá sama
banka og byrja svo að skrifa. Banka-
kortið tryggir úttekt fyrir 3000 krónur
gegn framvísun bankakorts sem er lít-
ils virði án myndar.
„Þessi tegund afbrota færist mjög i
vöxt. Ávísanaþjófar fagna vafalítið til-
komu bankakortanna. Áður voru þeir
í stökustu vandræðum með að koma
ávísunum í verð. Nú er leikurinn létt-
ur,“ sagði rannsóknarlögreglumaður í
samtah við DV.
Iðnaðarbankinn hefur einn banka
ekki tekið þátt í bankakortaútgáf-
unni. Hann ábyrgist ávísanir við-
skiptamanna sinna að upphæð 3000
krónur án bankakorta. -EIR
DV-mynd PK
Bankakort og ávisanahefti í stíl: Greið leið að flármunum.
Laxa i Aðaldal hefur unnið
Veiðimenn renna ennþá fyrir laxinn
en fiskurinn er orðinn leginn og getur
verið tregur, flugan er því sterk þessa
dagana. En núna er veiðinni lokið í
Laxá á Ásum, Norðurá í Borgarfirði
og Þverá í Borgarfirði, klakveiðin er
byrjuð í Laxá í Aðaldal og fá veiði-
menn laxinn til að taka hinar ýmsu
flugur. En hvaða veiðiá hefur sigur-
inn? Er einhver möguleiki að hnekkja
forskoti Laxár í Aðaldal? Við sjáum
til og kíkjum á stöðuna.
No. 1. Laxá í Aðaldal, 2850.
No. 2. Þverá í Borgarfirði, 2040.
No. 3. Laxá í Ásum, 1812.
No. 4. Blanda, 1700.
No. 5. Grímsá í Borgarfirði, 1681.
No. 6. Miðfjarðará, 1650.
No. 7. Langá á Mýrum, 1606.
No. 8. Norðurá í Borgarfirði, 1600.
No. 9. Laxá í Dölum, 1425.
No. 10. Hofsá í Vopnafirði, 1400.
Svo koma næst Laxá í Leirársveit,
Víðidalsá og Laxá í Kjós svo að nokkr-
ar séu nefhdar.
Laxá í Aðaldal hefur unnið þetta
sumarið glæsilega og engin áin getur
náð henni úr þessu en Laxá á Asum
er í sérflokki íslenskra veiðiáa, aðeins
er veitt á tvær stangir. G. Bender.
ri AMCIJeep
í 40 ár á íslandi
Hefur þú tryggt þér AMC Jeep
á þessu ótrúlega lága verði?
Ávallt nr. 1. 1040.000,-
STUTTUR AFGREIÐSLUTRESTUR
I EGILL /
/ VILHJÁLMSSON HE /
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200-27202.
Verð kr.
39.
Hönnuðir Fisher hafa lagt sig alla fram við
^hönnun þessa stórglæsilega myndbandstæk-
is. Útkoman er, eins og sést, glæsilegt tæki,
hlaðið tækninýjungum. VHS-HQ fullkomið
myndgæðakerfi - þráðlaus fjarstýring - 14
daga upptökuminni - digital teljari - kyrr-
mynd - snertitakkar - leitari með mynd -
sjálfvirk bakspólun.
SJÓNVARPSBÚÐIN
Borgartúni 16 - Reykjavík, sími 62-25-55
Strandgötu 23 - Akureyri,
sími 96-26563
Fisher tæki eru traust og örugg tæki með
mjög lága bilanatíðni og ekki spillir útlitið.
Tæki framtíðarinnar frá Fisher.
950
stgr.
.Qfí«dts-~Cc‘fMrtdafd ry mriSHER vioeo cassette recoroer HQ
Sparaðu krónuna og eyrinn. Kauptu Fisher._________________________________________ Fisher gæði í hverjum þræði.