Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Heimilið ’86
Hugvitsmenn með sérsýningu
Heimilissýningin, Heimilið ‘86, var
formlega opnuð af Matthíasi
Bjamasyni viðskiptaráðherra síð-
astliðinn fimmtudag en hann er
jafiiframt vemdari sýningarinnar. Á
sýningunni sýna 138 fyrirtæki fram-
leiðslu sína eða innflutning og er þar
að finna flest það er að notum kem-
ur við heimilishald.
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra hélt ræðu við opnunina og
lýsti sérstaklega yfir ánægju sinni
með að nú skuli vera haldin sérstök
sérsýning, Hugvit ‘86, á hugmyndum
og framkvæmdum íslenskra hugvits-
manna. Með þeirri sérsýningu er
ætlimin að tengja saman hugvits-
menn og eigendur íjármagns og
atvinnutækja. Þannig fá hugvits-
menn tækifæri til að kynna hug-
myndir sínar en hér á landi hefur
talsvert skort á að hugvitsmenn hafi
átt nægilega greiða leið að framleið-
endimum.
Davið Scheving Thorsteinsson iðnrekandi býður Jóni Helgasyni landbúnaðarráðherra, Hjalta Geir Kristjánssyni forstjóra og Þorsteini Fr. Sigurðssyni;
framkvæmdastjóra heimilissýningarinnar, að bragða á harðfiski smurðum Bláa borðanum, jurtasmjöri frá fyrirtæki Davíðs, Sól h/f. Svona að minnsta kosti
til að bregðast ekki skyldunum, sagði landbúnaðarráðherra: „Það væri nú kannski betra að hafa eitthvað annað á harðfiskinum." Davíð var ekki lengi
að svara: „Já, til dæmis Bláa borðann." Landbúnaðarráðherra svaraði engu. Kannski ekki alveg verið viss um hvað það var sem hann væri að bragða
á? Daman á myndinni heitir Stefania Thorsteinsson.
I tengslum við sýninguna verða
haldin 4 tíma námskeið um einka-
leyfamál, vöruþróun og um stofnun
fyrirtækja. Einnig verður haldin
ráðstefiia um áhættufjármagn á Is-
landi. Ráðstefiian verður haldin á
Hótel Esju fimmtudaginn 5. sept-
ember frá klukkan 14-18. Fyrirlesar-
ar verða Ken Hart frá samtökum
evrópskra áhættufjármagnseigenda,
Bragi Hannesson bankastjóri og
Sigurður Stefánsson frá Kaupþingi.
-Ró.G.
Peningamarkaöur
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóðsbækur óbundnar &-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.9-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9.9-12.5 Ab.Vb
12mán. uppsögn 11-14 Ab
Spamaður - Lánsróttur
Sparað i 3-5 mán. 8-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 8-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2.9-35 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 6-7 Ab
Sterlingspund 9-10.5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.9-4 Ab
Danskar krónur 6-7.5 Ab.Lb.Sb
Utlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kgeog 19.5
Almenn skuldabréf(Z) 15.5 Allir
Viöskiptaskuldabréf(1) kg. Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9
Utlón verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 4 Allir
Til lengri tima 5 Allir
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15
SDR 7.75
Bandarikjadalur 7.75
Sterlingspund 11.25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskirteíni
3ja ára 7
4raára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiöum(4 ár) 8.16
Gengistryggö(5 ár) 8.5
Almenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lffeyrissjððslán 5
Oráttarvextir 27
vIsitölur
Lánskjaravlsitela 1463 stig
Byggingavisitala 272.77 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% 1. júli
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bönkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vtuiskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstíifanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar-
bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb =
Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn,
Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Iðnaðarieyndaimál Eyrbekkinga
Álpönnusteypan Alpan á Eyrar-
bakka hóf starfsemi sína í janúar
síðastliðnum. Fyrst var um tilrauna-
framleiðslu að ræða en verksmiðjan
komst í gang fyrir alvöru í apríl. Nú
starfa við verksmiðjuna 18 manns og
er unnið á tveimur vöktum frá klukk-
an 7.00-23.00 á hverjum degi. Fram-
leiddar eru frá 500-1000 pönnur á dag
eftir því um hvaða tegund er að ræða.
Tegundimar eru ellefu talsins.
Framleiðsluaðferð pannanna eða
steypan er iðnaðarleyndarmál en ein-
ungis tvær aðrar pönnuverksmiðjur í
heiminum framleiða pönnur á sama
máta og er önnur verksmiðjan dóttur-
fyrirtæki Alpan í Danmörku. Hráefiiið
kemur viða að, en álið að sjálfsögðu
frá álverinu í Straumsvík. Að sögn
Þórs Hagalín skrifstofustjóra gengur
framleiðslan vel. „Allt er selt út eins
og er en við stefnum að sjálfeögðu á
innanlandsmarkað. Við losnum við
vöruna strax. Sumt seljum við gegnum
dótturfyrirtæki Alpan i Danmörku en
annað seljum við beint sjálfir. Þetta
dótturfyrirtæki er svipað að stærð og
Alpan-verksmiðjan á Eyrarbakka en
er gamalt og rótgróið fyrirtæki, tæp-
lega þrjátíu ára. Full afköst eru ekki
ennþá fyrir hendi hjá okkur. Við erum
að þreifa okkur áfram. Verksmiðjuna
getum við stækkað án erfiðleika því
húsnæði er töluvert stórt. Þessi verk-
smiðja er lyftistöng fyrir atvinnulíf ó
Eyrarbakka enda veitir hún 18 manns
vinnu,“ segir Þór Hagalín að lokum.
Ein pannanna fínpússuö.
Þór Hagalín, skrifstofustjóri Alpan, með sýnishorn af framleiðslunni.
DV- myndir ej.