Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1986, Blaðsíða 8
Utlönd
3SRX ffýfSUSVMB .1 fllíD/'ÖUKAM
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1986.
Kekkonen var kunnur útivistamnaður og mikill áhugamaður um veiðar ýmiss
konar. Hingað til lands kom Finnlandsforseti oftar en einu sinni til aö renna
fyrir lax í laxveiðiám er hann taldi þær bestu í veröldinni.
Verðíaunagripir
og verölaunaponingar
í mikiu úrvali
FRAMLEIÐI OG ÚTVEGA
FÉLAGSMERKI
PÓSTSEIMDUM
Imebal
Magnús E.Baldvinsson sf.
<J.angholtsvegi 111 sími 31199^
HEIMILISIÐNAÐAR-
SKÓLINN
Laufásvegi 2
INNRITUN ER HAFIN Á NÁMSKEIÐ VETRARINS.
Vefnaður f. byrjendur 8. sept.
Tréskurður 8. sept.
Prjóntækni 8. sept.
Myndvefnaður 9. sept.
Baldýring 18. sept.
Fatasaumstækni 1. okt.
Þjóðbúningasaumur 3. okt.
Leðursmíði 4. okt.
Vefnaðarfræði 6. okt.
Tauþrykk 7. okt.
Brugðin bönd 8. okt.
Vefnaður f. börn 11. okt.
Knipl 11. okt.
Tuskubrúðugerð 13. okt.
Bótasaumur 13. okt.
Sokka- og vettlingaprjón 6. nóv.
ATH. Hjá Heimilisiðnaðarskólanum er hámarksfjöldi
nemenda á námskeiði 6-10 og vel menntaðir kennar-
ar í öllum greinum. Nemendur fá námið viðurkennt
víða í öðrum skólum sem þátt á list- og verkmennta-
brautum.
Innritun að Laufásvegi 2, II hæð. Kennslugjald greið-
ist við innritun. Greiðslukortaviðskipti. Upplýsingar í
Urho Kekkonen látinn
Samskiptin við Sovétríkin homsteinn forsetatíðar Kekkonens
Urho Kekkonen, fyrrum forsætis-
ráðherra og forseti Finnlands í árarað-
ir, lést á sjúkrabeði í Helsinki
aðfaranótt sunnudags, áttatíu og fimm
ára að aldri.
Kekkonen var forseti Finnlands frá
árinu 1956 til 27. október 1981 þegar
hann afsalaði sér völdum af heilsu-
farsástæðum.
Kekkonen bjó að mestu í einangrun
í umsjón lækna og hjúkrunarfólks frá
því hann afsalaði sér völdum fyrir
tæpum fimm árum og kom af heilsu-
farsástæðum sjaldan fram opinberlega
síðustu árin.
Forsetinn fyrrverandi gat til dæmis
ekki tekið þátt í hátíðahöldum í tilefni
tíu ára afmælis undirritunar Helsinki-
sáttmálans á síðasta ári en Kekkonen
var frumkvöðull að undirritun sátt>
málans á sínum tíma.
Fjölskylda forsetans fyrrverandi
lýsti því yfir fyrir helgina að heilsu
Kekkonens hefði hrakað til muna og
tvisýnt væri orðið um líf hans.
úr stæðu er litið væri til baka yfir
gifturíka aðild Kekkonéns að alþjóða-
málum í forsetatíð sinni.
„Grundvallarskoðun Kekkonens var
sú hugmynd að utanríkisstefna lands-
ins væri veigamesti hlekkurinn í
finnskum öryggismálum og að sam-
band Finnlands við Sovétríkin væri
homsteinn utanríkisstefnunnar,"
sagði Paavo Vaeyrynen, utanríkisráð-
herra Finnlands, eftir lát Kekkonens.
Sagði Vaeyrynen að þessi grundvall-
arskoðun Kekkonens hefði hvergi
betur komið fram en í ræðu um utan-
ríkismál þar sem hann sagði eftirfar-
andi: „Afdrifaríkasta spumingin um
framtíð finnsku þjóðarinnar byggist á
samskiptum okkar við nágranna okk-
ar í austri, hvort sem nafhið er
Novgorod, Moskva, Rússland eða Sov-
étríkin."
Kekkonen gegndi embætti innan-
ríkisráðherra og forsætisráðherra um
hríð áður en hann var kjörinn forseti
Finnlands með naumum meirihluta'
árið 1956.
inn er gat hrætt Finna til að hata
ekki Rússana," er haft eftir finnskum
kjósanda eftir kosningamar 1978.
Doktor í lögum
Urho Kaleva Kekkonen fæddist í Pi-
elavesi í miðhluta Finnlands þann
þriðja september árið 1900.
Með námi í lagadeild Helsinkihá-
skóla starfaði Kekkonen sem blaða-
maður um hríð en námi lauk hann
formlega með doktorsgráðu í lögum,
eftir námsdvöl í Þýskalandi.
Tuttugu og sex ára að aldri kvænt-
ist hann prestsdóttur úr heimahéraði
sínu og átti með henni tvo syni.
Kekkonen var alla tíð mikill íþrótta-
garpur. Finnlandsmeistari í ýmsum
greinum fijálsra íþrótta varð hann
oftar en einu sinni og keppti meðal
annars fyrir hönd Finnlands á tvenn-
um ólympíuleikum, árið 1928 og 1932.
fþróttir stundaði Kekkonen fram á
áttræðisaldur, þar á meðal skíðagöngu
er hann stundaði þar til heilsunni fór
að hraka í byrjun þessa áratugar.
Til íslands í lax
Kekkonen var einnig mikill áhuga-
maður um veiðar ýmiss konar. Kom
hann til dæmis nokkrum sinnum til
fslands til að renna fyrir lax.
Finnsku þjóðinni berast nú samúð-
arskeyti frá ríkisstjómum víðs vegar
um heiminn þar sem Kekkonen er lof-
aður fyrir störf sín að alþjóðamálum,
ekki síst aðild sína að Helsinkisátt-
málanum og öryggismálaráðstefnu
Evrópuríkja.
Ríkisstjóm Finnlands lýsti í gær-
morgun yfir þjóðarsorg í landinu og
hvarvetna blakta þar fánar í hálfa
stöng.
Alþjóðlegur stjórnmálaleiðtogi
„Merkur Finni og alþjóðlegur stjóm-
málaleiðtogi er fallinn í valinn,“ sagði
Mauno Koivisto, forseti Finnlands og
eftirmaður Kekkonens, í ávarpi til
finnsku þjóðarinnar eftir að fréttist
um lát forsetans fyrrverandi.
Koivisto sagði að á valdatíma Kekk-
onens hefði Finnum tekist að byggja
upp varanlegt og gagnkvæmt traust í
samskiptum sínum við Sovétríkin eftir
stríðsátök ríkjanna á dögum síðari
heimsstyrjaldar en á sama tíma styrkt
hlutleysistefnu Finna og góð sam-
skipti við vesturveldin. Taldi Koivisto
að Helsinkisáttmálinn og áframhald-
andi fúndir öiyggismálaráðstefnu
Evrópu væm þeir homsteinar er upp
Náið samband við Sovétleið-
toga
Aldarfjórðungslöng forsetatíð Kekk-
onens einkenndist af góðum samskiptr
um við Sovétríkin þar sem kjölfestan
var vináttusamningur ríkjanna frá
árinu 1948. Kekkonen komst og í náið
persónulegt samband við Sovétleið-
toga sem af ýmsum fréttaskýrendum
er talin ein ástæða fyrir því sérstaka
sambandi er ríkt hefur á milli Finn-
lands og Sovétríkjanna síðustu ára-
tugi.
Finnar endurkusu Kekkonen í síð-
asta sinn sem forseta með yfirgnæf-
andi meirihluta í forsetakosningunum
árið 1978. „Kekkonen var eini maður-
Kekkonen heimsótti ísland í síðasta sinn um miðjan ágúst 1981. Hér heilsar hann upp á forseta islands, Vigdísi Finn-
bogadóttur, á Bessastöðum.
Styrkið og fegrið fíkamann
Byrjum aftur eftir sumarfrí
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 8. sept.
Hressandi - mýkjandi - styrkjandi - ásamt megrandi æfingum. Sértimar fyrir
konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem
eru slæmar i baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu-
böð — kaffi — og hinir vinsælu sólaríum-lampar.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Júdódeild Ármanns
Á____nii Innritun og upplýsingai*alla virkadaga
/krmu/a JZ. kl. ^-22 \ sima 83295.